22.11.1939
Neðri deild: 65. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í C-deild Alþingistíðinda. (3215)

117. mál, jarðræktarlög

*Steingrímur Steinþórsson:

Ég vil aðeins segja nokkur orð um þetta frv. áður en það fer til n. Það sterka hjá þessu frv. hv. 8. landsk. er það, að hann hefir komið auga á það, sem fleirum er nú orðið ljóst, að það er mikill skortur á áburði til að halda við nýrækt og einnig gamalli ræktun hér hjá okkur, og er þetta tilraun hjá hv. flm. til að reyna að bæta úr þessum skorti að einhverju leyti, og skoðar hann það sem einskonar ófriðarráðstöfun að veita styrk til að hægt sé að fá áburð með þolanlegu verði til að viðhalda ræktuninni, meðan verð hans er óhæfilega hátt. Ókostur frv. er, að ég hygg, að erfitt sé að framkvæma það að ýmsu leyti. Úttekt jarðabóta hefir farið þannig fram að jarðabætur frá í fyrra hafa verið teknar út í ár. Síðan eiga trúnaðarmenn Búnaðarfélagsins eftir að senda félaginu skýrslur, og þær fær Búnaðarfélagið sjaldan fyrr en eftir áramót, og styrkinn er ekki búið að reikna út eftir þeim fyrr en í marz eða apríl

Samkv. frv. á ráðh. að ákveða ekki síðar en 20. febrúar, hvort þessi heimild skuli notuð og hvaða upphæð skuli varið til að styrkja menn til áburðarkaupa. Gallinn er því, að þeir bændur, sem von eiga á styrk, fá ekki að vita fyrr en svo seint, hver styrkurinn verður, en einkasalan heimtar af þeim, að þeir séu búnir að ákveða sín áburðarkaup ekki síðar en um áramót. Hvort bændur kaupa mikið eða lítið af áburði, fer auðvitað eftir verðinu, sem á honum er, og eftir því, hve þeir fá mikinn styrk. Hygg ég því, að framkvæmd þessa frv. verði allerfið og þung í vöfunum.

Þá er og annað, sem stendur hér í 1. gr., — með leyfi hæstv. forseta. Þar segir: „ .. skal þá fjárhæð sú, er lækkuninni nemur (þ. e. lækkuninni á styrk skv. II.-V. tölul. 9. gr. jarðræktarlaganna), notuð til styrktar kaupum á áburði, sem bændum er brýn þörf á að afla sér umfram heimafenginn áburð til viðhalds tún- og garðrækt“. Skilst mér á þessu, að Búnaðarfélagi Íslands muni ætlað að skera úr um, hvort viðkomandi bóndi hafi „brýna þörf“ fyrir að fá áburð til viðbótar sínum heimafengna áburði. En allir bændur telja, þegar slíkur styrkur er veittur, að þeir hafi brýnasta þörf fyrir áburð, og það er ómögulegt, hvorki fyrir Búnaðarfélag Íslands né neitt annað vald, að skera úr um það, hvaða bónda sé brýnust þörf á áburði til að halda við ræktun sinni og hverjum ekki. Ef á að skilja þetta þannig, að Búnaðarfélag Íslands eða trúnaðarmenn þess eigi að hafa úrskurðarvald um þetta. þá er ómögulegt að framkvæma það þannig, að vit sé í. Ég vildi aðeins benda á þetta, en það er langt frá því, að ég sé að hafa á móti frv. sjálfu, né heldur, að ég virði ekki vilja hv. flm. til þess að bæta úr vandræðunum, sem eru með það að fá áburð til að halda við nýræktinni.

Það er tvennt, sem stendur okkar miklu ræktun fyrir þrifum. Annað er áburðarleysi, en hitt er vöntun á framræslu. Á næstunni má búast við, að tilbúinn áburður verði svo dýr, að ómögulegt verði að kaupa hann. En það er annað, sem bændur geta gert. Það er að stuðla að því, að framræslan verði bætt fyrst og fremst, og það er hægt að gera án þess að nota nokkurt erlent efni, — þar þarf ekki annað en vinnu. Ég heyri, að einhver nefnir skóflur, en ég hygg, að nóg sé til af þeim í landinu, svo að ekki þurfi að kaupa til viðbótar, þótt framræslan verði aukin.

Það er aðallega þetta atriði, sem ég vildi minna á, og þar hygg ég, að eigi að taka stórt átak í framtíðinni. Við getum stóraukið afrakstur okkar ræktaða lands með því að bæta framræsluna. Mikið af nýrri ræktuninni er skyndirækt, þar sem framræslan er ekki síður þýðingarmikil en áburðurinn. Þess vegna eigum við fyrst og fremst að einbeina okkar jarðræktarframkvæmdum að því næstu árin að endurbæta framræsluna á því landi, sem ræktað hefir verið undanfarið. Hinsvegar veit ég, að það gerir ekki óþarft, að reynt sé að bæta úr áburðarþörfinni. En Búnaðarfélag Íslands mun hvetja bændur til að stefna í þessa átt hin næstu ár, og æskilegt væri, að hv. þm., sem eru forvígismenn hver í sínu héraði, hvettu bændur til hins sama. Það má bæta jarðræktina mikið með því. En hinsvegar fæst minni styrkur til framræslunnar, og því yrði það minni fjárhæð, sem félli til styrks til áburðarkaupa skv. frv.

Skal ég svo ekki fjölyrða um þetta. Ég stóð aðallega upp til þess að koma að þessum almennu athugasemdum um ræktunarmálin. Ég tel, að tilgangur frv. sé góður, en að það muni verða erfitt í framkvæmd á þann hátt, sem það nú liggur fyrir.