25.11.1939
Neðri deild: 68. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 333 í C-deild Alþingistíðinda. (3252)

135. mál, prófessorsembætti í uppeldisfræði og barnasálarfræði

Pálmi Hannesson:

Frv. þetta er flutt af menntmn. Af því að hv. frsm. er ekki viðstaddur, vildi ég aðeins benda á, að samskonar frv. var afgr. frá þessari deild á þinginu 1938, og er nú tekið upp að nýju. Ég óska þess, að frv. verði að lokinni umr. vísað til 2. umr., en nefnd sú, sem það hefir flutt, mun að sjálfsögðu hafa það til athugunar.