19.12.1939
Neðri deild: 87. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í C-deild Alþingistíðinda. (3293)

144. mál, eyðing svartbaks og hrafns

*Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson):

Allshn. hefir klofnað um þetta mál; meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ., en minni hl., hv. 1. þm. Rang. og hv. 7. landsk., eru á móti því. Aðalefni frv. er það, að 2 vargfuglar skuli eyddir sem mest næstu 2 ár.

Eins og sést í grg. frv., fjölgar þessum fuglum mjög ört, samtímis því sem æðarfugli fækkar og dúntekja minnkar. 1912 voru flutt út 4187 kg af æðardún, en 1937 hafði útflutningurinn lækkað niður í 2791 kg. Enginn vafi er á því, að báðar þessar fuglategundir eru mjög hættulegar æðarvarpi og eyðileggja það, og eins og þessi tilvitnun í hagskýrslurnar sýnir, hefir æðarfuglinn minnkað eftir því sem vargfugli fjölgar. Ennfremur er víst, að báðir þessir fuglar eru mjög ágengir við aðrar fuglategundir, sem eru ýmist til prýði eða gagns fyrir landsmenn. Þess vegna verður eyðing þessara fuglategunda til gagns fyrir þjóðina. Ég vona, að hv. deild taki vel á móti þessu frv. Við flm. höfum borið fram brtt. við 4. gr., þar sem mönnum er gert að skyldu að eyða eggjum vargfugla úr landi sínu, og höfum við bætt inn í: „ef þess er kostur“. Það liggur meira á um þetta atriði hvað veiðibjölluna snertir, og er þetta því ekki tekið fram um hrafninn.