19.12.1939
Neðri deild: 87. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í C-deild Alþingistíðinda. (3304)

144. mál, eyðing svartbaks og hrafns

*Garðar Þorsteinsson:

Mér kemur þetta undarlega fyrir hjá hv. þm. Barð., þegar hann segir, að ekki komi til mála að sekta neitt fyrir það, þó að menn vanræki að einhverju leyti að leita uppi hreiður þessara fugla, en þó hefir hann væntanlega sjálfur samið 4. gr., þar sem stendur, að það varði 50–300 kr. sekt að vanrækja að eyða eggjum veiðibjöllu og hrafns í heimalandi sínu og öðrum þeim löndum, sem menn eiga yfir að ráða. (BJ: Hv. þm. veður tóman reyk um það, sem hann segir). Það var tómur reykur, sem þessi hv. þm. var með. (BJ: Hv. þm. hefir farið í hann). Englendingum reyndist nú vel að fara í reyk um daginn. Hv. þm. talaði hér sem flm. frv. Hann er frsm. meiri hl. n. Hann er sýslumaður og yfirvald. Og svo segir hann um leið og hann mælir fyrir sektarákvæðum síns eigin frv., að það komi ekki til mála að beita þessum ákvæðum. Af þessu einu má marka, hversu mikil fjarstæða þetta er. Það gefur góða hugmynd um embættisfærslu þessa hv. þm., þegar hann er að lýsa yfir, að ekki komi til mála að beita sektarákvæðunum í þeim l., sem hann er að berjast fyrir að verði sett.

Þá vil ég benda honum á, að 6. gr. l. frá 1936 og 4. gr. þessa frv. eru mjög ólíkar. Í l. er ekki leyft að sekta jarðareiganda, nema hann vanræki að eyða eggjum af ásetningi eða skeytingarleysi. (BJ: Það sagði ég). En það vantar alveg í hans góða frv. Frv. hans er því miklu strangara, en svo segir hann, að ekki komi til mála að taka neitt tillit til þess, sem hann sjálfur hefir samið og talað fyrir.

Í þessu frv. er þó eitt atriði, sem er til bóta, en það er að fella burt úr núgildandi l. ákvæðið um, að eitra megi fyrir svartbakinn. Ég man, að einu sinni mælti hann fast með því, að svartbakurinn væri drepinn á eitri. Ég veit ekki hvort það er af samvizkubiti hjá honum, að hann vill nú fella burt þetta grimmdarlega ákvæði gömlu l., en þetta er það eina, sem er gott við þetta nýja frv.

Hann mótmælti ekki, að hann hefði lýst því yfir, að ákveðið um eyðingu hrafns væri aukaatriði og mætti falla úr frv. Hann sagði það ekki beinlínis, en það mátti leiða af orðum hans, og sama sagði hv. 6. þm. Reykv. En hvers vegna á þá að vera að samþ. frv. um eyðingu svartbaks, fyrst viðbótin er óþörf og hv. þm. mundu e. t. v. greiða atkv. með að fella hrafninn í burt? (SK: Nei). Nú, ekki það. Hv. þm. versnar þá eftir því, sem líður á daginn.

Ég vil skjóta því fram til þeirra, sem hér hlusta á þessar umr. og væntanlega hafa flestir verið í sveit, hvort það væri ekki ákaflega skemmtilegt að sjá menn vera að læðast út um bæjardyrnar með hlaðna byssu til að skjóta hrafn, sem situr á bæjarburstinni. Það er ákaflega karlmannlegt! Þessir höfðingjar sem eru að freista þessara vesalinga með því að hækka gjaldið úr 40 aurum upp í krónu, til þess að fá einhverja til þess að taka sér byssu í hönd, ættu þá að koma með ákvæði um að sekta þá, ef þeir hitta ekki almennilega!