13.04.1939
Efri deild: 38. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 373 í C-deild Alþingistíðinda. (3372)

68. mál, jarðræktarlög

Flm. (Brynjólfur Bjarnason):

Ég mundi telja vel horfa, enda þótt frv. næði ekki samþykki á þessu þingi, ef tillit væri tekið til þeirrar stefnu, sem í því felst, þegar að því kemur, sem búast má við að verði bráðlega, að jarðræktarl. verði endurskoðuð. Hinsvegar vil ég eindregið leggja til að málinu verði vísað til landbn. og hún taki það til meðferðar og geri sínar till. um það, hvað hún álítur rétt í þessu máli, svo tillit verði tekið til þess, þegar jarðræktarl. í heild koma til endurskoðunar. En ég álít, að þetta mál sé þannig, að það sé því betra sem það nær fyrr fram að ganga.