08.11.1939
Efri deild: 56. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 376 í C-deild Alþingistíðinda. (3383)

104. mál, skattundanþága af stríðsáhættuþóknun

Sigurjón Á. Ólafsson:

Hv. flm. frv. þessa hefir nú gert lauslega grein fyrir því. Ég stend ekki upp til þess að andmæla frv., en mér finnst skylt að geta þess, að hér á hv. Alþ. er á ferðinni annað frv., sem hnígur í sömu átt. Það frv. mun vera borið fram að tilhlutun hæstv. ríkisstj., og ég hygg, að það liggi nú fyrir hjá fjhn. Ég hefi átt kost á að sjá frv. og vil geta þess, að það er víðtækara að sumu leyti heldur það frv., sem hér liggur fyrir. Ég er fylgjandi því., að þessu frv. verði vísað til fjhn. og, ef nefndin að athugun lokinni telur það nauðsynlegt, að frv. komi til 2. umr. En ég vil aðeins drepa á, að mér finnst þörf á að leiðrétta þá vanþekkingu, sem mér virtist koma fram í ræðu hv. 1. landsk. Hann talaði um þá óánægju, sem ríkti út af þeim samningum, sem gerðir hafa verið um áhættuþóknun sjómanna, og taldi hann, að sökum þeirrar óánægju væri frv. þetta flutt. Hér í þinginu liggja fyrir bráðabirgðal. um breyt. á l. um gengisskráningu og ráðstafanir í því sambandi. Í sambandi við það vil ég skýra frá því, að þeir, sem hafa haft með þessi mál að gera fyrir hönd sjómanna, hafa yfirleitt litið svo á, að upphaflega, þegar l. um gengisskráningu voru sett, hafi verið gert ráð fyrir, að slík uppbót eða áhættuþóknun mætti eiga sér stað, án þess að lögunum þyrfti að breyta. Ég verð einnig að geta þess, að ég held, að hæstv. ríkisstj. hafi ekki verið ólíkrar skoðunar, sem sé að slíkt væri heimilt án þess að gera breyt. á l. um gengisskráningu. En samt komu fram aðilar, sem töldu öruggara, að gefin væru út þau bráðabirgðal., sem nú liggja fyrir, til þess að engin deila gæti risið út af því eftir á. Eins og kunnugt er, voru gerðir samningar milli sjómannastéttarinnar annarsvegar og útgerðarmanna hinsvegar um áhættuþóknun sjómanna. Þessir samningar voru fyrst og fremst gerðir við þau útgerðarfélög, sem annast siglingar til landsins og frá. Ég hygg, að þeim samningum sé yfirleitt þannig varið, að tæplega verði hægt að vænta þess, að þeir gangi miklu lengra heldur en raun varð á. Ég verð að mótmæla þeirri skoðun, sem kom fram hjá hv. flm., að nokkur óánægja sé ríkjandi meðal farmanna út af þeim samningum, er gerðir hafa verið; það mun öllu heldur vera um hið gagnstæða að ræða. Ég hefi ekki orðið var við neina óánægju meðal farmanna út af þeim. Grundvöllur slíkra samninga er yfirleitt sá sami sem þeirra, er hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa komið á hjá sér í byrjun styrjaldarinnar. Ég gæti jafnvel nefnt dæmi um viss atriði, þar sem e. t. v. er öllu lengra gengið hjá oss Íslendingum en hjá hinum Norðurlandaþjóðunum. Ég held, að það sé af vanþekkingu mælt, að tala um almenna óánægju hvað farmannastéttina snertir.

En hvað viðkemur sjómönnunum, sem stunda fiskveiðar, þá er rétt að geta þess, að í úrskurði um kaup og kjör sjómanna á fiskveiðum, sem nú er í gildi, frá 21. marz 1938, er gengið út frá því, að ef styrjöld brýzt út, skuli vera um áhættuþóknun að ræða fyrir þá sjómenn, er sigla á fiskiskipum til útlanda, og meira en það, þar er sköpuð regla um það, hvernig þessari áhættuþóknun skuli fyrir komið. Í fyrsta lagi sú upphæð, sem skal reiknast, er hin sama bótaupphæð eins og hún er mest á verzlunarskipum, þ. e. 250% á hinum meiri áhættusvæðum, og farið skal eftir vissum reglum um það, hvernig hún reiknast á hvern einstakan sjómann. Út frá þessum ákvæðum var gengið og ekki hægt að víkja frá, þegar samkomulag var gert um áhættuþóknun fyrir þá, sem sigldu á fiskiskipum til útlanda með fiskfarm. Ég hygg, að þessi óánægja sé meira í heila hv. 1. landsk. heldur en meðal sjómanna. Það er víst rétt, að af hálfu flokksmanna hans var reynt að ala á óánægju fyrstu vikuna eftir að þetta samkomulag var gert við togaraútgerðarmenn. En eftir að sjómenn voru búnir að fá skýringar á samkomulaginu og fullljóst var orðið, hvernig málið lá fyrir, þá hvarf sú óánægja, og er ekki til lengur nema hjá örfáum mönnum, sem kunna að vera jábræður hv. 1. landsk. Ég leyfi mér að fullyrða, að sú grein samkomulagsins, sem mestar horfur voru á, að vekti óánægju, eru ákvæðin um, hvernig áhættuþóknunin skiptist á hvern einstakan mann, sem á skipunum vinnur. Enda þarf ekki að fara í grafgötur með það, að það er ekki lágt kaup, eftir því sem við eigum yfirleitt við að búa, þegar kyndarar og jafnvel hásetar geta fengið allt að 600 kr. á mánuði, og ég geri ekki ráð fyrir, að menn telji sennilegt, að unnt verði að komast lengra með samningum. Ég hefi reiknað út kaupstiga yfir það, hvað hátt kaup sjómanna yrði á þeim skipum, er sigla mánaðarlega til útlanda um áhættusvæðin. Hér er um nákvæmlega sömu reglur að ræða, sem hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa sett hjá sér, og við erum þar engir eftirbátar þeirra. Ég vil taka þetta fram til að fyrirbyggja, að því yrði trúað, að almenn óánægja út af þessu væri fyrir hendi, eins og hv. 1. landsk. vildi vera láta.

Hvað áhættuþóknunina snertir, sem þetta frv. fer fram á, get ég tekið undir með hv. flm. um það, að ekkert er eðlilegra en að sjómenn fái þá uppbót, sem greidd er fyrir að sigla um áhættusvæðin, án nokkurs frádráttar, svo að ekki þurfi að greiða af því fé, skatta og skyldur til hins opinbera. Mér er sagt, að slíkar kröfur hafi komið fram í Danmörku, en mér er ekki kunnugt um, hvernig afgreiðslu þær hafa fengið, enda skiptir það engu máli fyrir mig. En því ber ekki að neita, að aðilar stéttarfélaganna ræddu við hæstv. ríkisstj. um þetta atriði, og eftir því, sem ég bezt veit, hefir ríkisstj. mælt með því við Alþ., að helmingur áhættuþóknunarinnar yrði skattfrjáls, jafnt til ríkis sem til bæjarfélaga, og mun það verða tekið til greina, eins og kemur fram í frv. um þetta efni, sem fjhn. flytur og væntanlega liggur hér innan skamms fyrir. Að vísu er það ósk fjölda sjómanna, að öll áhættuþóknunin verði skattfrjáls, en hæstv. ríkisstj. hefir ekki séð sér fært að mæla með því, að meira en helmingur verði skattfrjáls, en að sjálfsögðu mun ég gefa hv. deild kost á því, hvort hún vill ganga lengra en hæstv. ríkisstj. hefir séð sér fært að leggja til. Ég mun gera tilraun til að fá úr því skorið, hvernig þessi deild lítur á það mál við síðari umr.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta, en mun greiða atkv. með því, að þessu frv. verði vísað til n., sem væntanlega verður fjhn., til þess að hún geri sínar ráðstafanir um, hvaða meðferð þetta frv. fær í sambandi við það frv., sem fyrir liggur hjá nefndinni.