08.11.1939
Efri deild: 56. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í C-deild Alþingistíðinda. (3384)
104. mál, skattundanþága af stríðsáhættuþóknun
Bernharð Stefánsson:
Ég vildi aðeins geta þess, að hæstv. fjmrh. (JakM) afhenti fjhn. frv. um hið sama efni, sem það frv. fjallar um, er nú liggur hér fyrir. Hv. 2. landsk. hefir að vísu vikið að þessu í ræðu sinni, en mér þótti réttara, að það kæmi skýr yfirlýsing um það hér í hv. Ed. Að öðru leyti ætla ég að segja, að ég hugsa, að það sé langhentugast, að Alþ. fjalli aðeins um eitt frv. um þetta efni, því að það má bera fram hvaða brtt. sem verkast vill við slíkt frv., og þess vegna finnst mér það frv., sem hér liggur fyrir, ekki eiga neitt erindi til n., þar eð hv. dm. vita það hér með, að sú n., sem mun eiga að fá þetta frv. til meðferðar, hefir nú þegar fengið til meðferðar annað frv. um sama efni, þó að þessi d. hafi ekki vísað því máli til n. Hv. fjhn. hefir víst ekki enn tekið ákvörðun um það frv., sem hæstv. fjmrh. afhenti henni, en ég þori að fullyrða, að fjhn. mun taka það til flutnings. Það hefir æfinlega verið siður, að þingn. taki til flutnings frv. frá hæstv. ríkisstj. Ég tek þetta aðeins fram út af formshlið þessa máls, en efni þess mun ég ekki ræða hér að sinni.