21.04.1939
Sameinað þing: 7. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í D-deild Alþingistíðinda. (3414)

63. mál, tímareikningur

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti! Þegar ég varð einn af flm. þessarar till., vakti aðallega fyrir mér, að með því að flýta klukkunni, eins og heimild er fyrir í gömlum l., þá mætti spara þjóðinni allmikinn ljósmetiskostnað. Ég var í morgun að athuga, hvað mörg heimili væru á landinu, og eftir manntalinu 1930 eru þau kringum 21 þús., en eru sjálfsagt fleiri nú. Síðan athugaði ég, hvað mörg notuðu rafmagn og hvað mörg olíuljós, og komst ég að því, að 12 þús. notuðu rafmagn, en 9 þús. olíuljós. Ef litið er á raflýstu heimilin, er erfitt að segja um, hvað mikið sparast þar, ef einn ljósatími er færður yfir á dagtíma, en ef við hugsum okkur, að hvert heimili sé lýst með 2 perum 50 kerta, þá sparast 480 kr. fyrir hvern tíma, sem er hægt að færa af ljósatíma yfir á dagtíma. Þetta sparast hjá einstaklingunum, en þó ekki út á við, þegar rafmagnið er komið og framleitt með vatnsorku, en það er þó a. m. k. sparnaður í gjaldeyri þar, sem nota verður mótora til að raflýsa með. En ef við gerum ráð fyrir, að hvert heimili, sem notar olíu til ljósa, sé lýst upp með 2 20“ brennurum, þá sparast 5 aurar á hvert heimili fyrir hvern ljósatíma, er færist á dagtíma. eða 450 kr. fyrir alla þjóðina í aðfluttu eldsneyti, sem á ófriðartímum - og margir búast nú við ófriði — er erfitt að ná í og því full þörf á að spara. Þetta er því fyrst og fremst sparnaðarmái. Ég viðurkenni. að hver maður getur gert þetta sjálfur án aðgerða Alþingis, en .alþingi getur haft áhrif á, að allir geri það með því að færa klukkuna.

Ég á erfitt með að skilja, hvers vegna veðurstofan ætti ekki að geta lagað sig eftir breyt. á klukkunni eins og veðurstofur í hinum löndunum. Mér er næst að halda, að forstjóri veðurstofunnar sé ekki búinn að átta sig almennilega á. málinu. Veðurstofan hér hlýtur að geta lagað sig eftir klukkunni, eins og t. d. í Englandi, sem kemst vel af með sínar veðurfregnir jafnt þó þar sé sumartími og vetrartími. Ég held því, að það stafi bara af fastheldni við gamlar venjur og siði, ef veðurstofunni. er ógeðfellt að breyta til.