26.04.1939
Sameinað þing: 11. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (3440)
92. mál, vöruflutningaskip til Ameríkuferða
*Jón Pálmason:
Það stendur svo á, að ég hefi ekki getað fylgzt með meðnm. mínum í fjvn. í því að leggja til, að þessi till. verði samþ. Mér þykir ástæða til að gera grein fyrir minni afstöðu til till.
Eins og hv. frsm. gat um, þá hafa að undanförnu farið fram umleitanir af hálfu stjórnar Eimskipafél. Íslands um að fá stuðning til þess að byggja stórt skip, sem að nokkru leyti sé ætlað til mannflutninga og að nokkru leyti til vöruflutninga. Það var gert ráð fyrir, að skipið væri 320 fet á lengd og myndi kosta um 4½ millj., og rekstrarhalli á því myndi verða 345 þús. kr. á ári, eftir þeim áætlunum, sem fyrir lágu. En samkv. upplýsingum frá stjórn Eimskipafél. var gert ráð fyrir, að hægt væri að færa hann nokkuð niður.
Nú hefi ég litið svo til, að þótt þessar tölur væru ekki alveg nákvæmar, þá væri það hreinasta fjarstæða að leggja út í svo stórfelldan hallarekstur, þótt líkur væru til, að hægt væri að fá af því hagnað á annan hátt. Það lítur nú út fyrir, að búið sé í bili með þetta fyrirtæki, þar sem fyrrv. atvmrh. hefir með bréfi dags. 5. þ. m. neitað að mæla með því, að stuðningur verði veittur til þess að byggja þetta skip. Það má gera ráð fyrir, að núv. hæstv. ríkisstj. telji sig að einhverju leyti bundna við þá neitun.
Þá kemur til greina, að láta byggja þetta vöruflutningaskip, sem þessi till fjallar um. Í þessu sambandi vil ég geta þess, að samkv. upplýsingum og áætlunum, sem stjórn Eimskipafél. gaf fjvn., þá var talað um, að rekstrarhalli á þessu vöruflutningaskipi myndi verða 70–80 þús. kr. meiri en á hinu stærra skipi. Ég hefi að sjálfsögðu ekki aðstöðu eða þekkingu til þess að dæma um, að hve miklu leyti þessar áætlanir muni vera réttar. En þegar ég fæ þessar upplýsingar frá þeim aðiljum, sem hlut eiga að máli, að rekstrarhallinn á þessu fyrirhugaða vöruflutningaskipi verði hærri heldur en á hinu stóra skipi, þá treysti ég mér ekki til að mæla með því að skora á ríkisstj. að hefja samninga við stjórn Eimskipafél. á þessum grundvelli. Ég tel þess vegna mjög hæpið að gera fasta samninga um þetta minna skip nú sem stendur.
Ég vil taka það fram, að ég sem þm. tel mig ekki bundinn af þeim samningaumleitunum, sem farið hafa fram um þetta mál. Það verður að meta, hvað mikil nauðsyn er hér fyrir hendi, og ég tel eðlilegt eins og þessu máli er nú komið, að þingið vísi því til ríkisstj., og vil ég leyfa mér að leggja það til.