26.04.1939
Sameinað þing: 11. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í D-deild Alþingistíðinda. (3443)

92. mál, vöruflutningaskip til Ameríkuferða

*Pétur Ottesen:

Ég veit. að við erum allir sammála um, að Eimskipafél. Ísl. hefir mikilsvert hlutverk að inna af hendi, þar sem okkur hefir tekizt með stofnun þess félags að losna undan því leiðinlega ástandi, að þurfa að öllu leyti að vera upp á aðrar þjóðir komnir með aðflutninga til landsins og flutninga á okkar afurðum til annarra landa. Það er ekki hægt að gera kröfu til þess, að þróunin hafi verið örari en hún hefir verið, enda skortir mikið á, að við fullnægjum flutningaþörfinni til og frá okkar landi. Ennþá þurfum við að verja allmiklu af okkar dýrmæta gjaldeyri til þess að borga farmgjöld til annarra þjóða.

Hinsvegar dylst mér það ekki, að í þessari þróun hjá Eimskipafél. höfum við komizt lengra áleiðis með að fullnægja fólksflutningaþörfinni heldur en farmflutningaþörfinni, og þess vegna virðist mér það réttmætt og frekar ástæða til, að því leyti, sem ríkisvaldið sér sig knúið til, að veita Eimskipafélagi Íslands atbeina til þess að geta betur en hingað til mætt farmflutningaþörfinni, og það því fremur, sem svo stendur á hjá þjóðunum, að margir búast við, að til ófriðar geti dregið, þá er þörfin í þessu efni ennþá ríkari. Ég held þess vegna, að verið sé á réttri leið með þessa þáltill., þegar maður lítur á þessa þróun og þörfina í framtíðinni. að beina því til Eimskipafél. Ísl., að það leggi, eins og sakir sanda, meiri og ríkari áherzlu á að auka skipakostinn að því er snertir farmflutninga. Svo er líka annað atriði, sem þarna kemur til greina, að okkur er nauðsyn á því að beina okkar viðskiptum meir en verið hefir til Ameríku. Það hefir þegar komið í ljós, að það hillir undir allverulega sölumöguleika þar að því er snertir saltfisk og síld. Auk þess er það ekki ómögulegt, að þegar leiðin vestur er opnuð fyrir afurðasölu, þá gætum við fengið þar hagkvæm kaup á ýmsum þeim nauðsynjum, sem við nú kaupum frá öðrum þjóðum, og gætum við þá flutt það með sömu skipum aftur til landsins.

Þegar á þetta er litið, þörfina á því að beina þróuninni í þessa átt frekar en orðið er, og haga þeim skipakosti, sem bætist við, þannig, að hann geti tekið að sér flutninga til Ameríku, þá er það svo mikilsvert atriði, að það er fullkomlega þess vert fyrir þingið að reyna að ýta undir og örva þróunina í þessu efni og færa þetta mál inn á þá braut, sem þinginu finnst réttmæt og eðlileg, eftir því viðhorfi, sem nú er.

Ég get ekki fallizt á að vísa þessu máli til stj., því það er sama sem að þingið segi, að það vilji ekkert gera við þetta mál. Þegar málum er vísað til ríkisstj. undir venjulegum kringumstæðum, þá er þingið að hliðra sér hjá að taka afstöðu til málanna, og það er hægt að taka svo til orða, að það sé sama og að setja þau í drekkingarhyl. Ég vil undirstrika það, sem hv. form. fjvn. og frsm. till. sagði um hana og þá þýðingu, sem það gæti haft, að þannig væri tekið á þessu máli eins og till. hljóðar um. Ég vildi því mega vænta þess. að þingið geti fallizt á að fara þessa leið. Ef till. verður samþ., þá hefir ríkisstj. yfirlýstan vilja þeirra manna, sem greiða henni atkv., um það, hvernig þeir vilja, að tekið sé á málinu, eftir því viðhorfi, sem nú er.