26.04.1939
Sameinað þing: 11. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í D-deild Alþingistíðinda. (3447)

92. mál, vöruflutningaskip til Ameríkuferða

*Sigurður Kristjánsson:

Ég mun greiða atkv. með því að þessu máli verði vísað til stj., og þykir mér rétt að gera nokkra grein fyrir þeirri afstöðu minni. Það er vitað, að Eimskipafél. hefir fyrir löngu ákveðið að láta byggja skip til millilandaferða, og það allt öðru visi skip en hér er boðizt til að styrkja. Það hefir ekki komið fram í þessum umr., að Eimskipafél. hafi beðið um þennan styrk, sem hér er um að ræða, og ég geng út frá, að það hafi ekki gert það. Það mun vera fátítt, að boðizt sé til að styrkja hluti, sem ekki er beðið um neinn styrk til. Það þarf ekki að fara í neinar grafgötur með það, að þessi tili. er áreiðanlega borin fram í því ákveðna augnamiði að sporna við þeirri ákvörðun Eimskipafél. að byggja fullkomið millilandaskip. Ég mun þess vegna greiða atkv. með því, að þessari till. verði vísað til stj. Það er öllum vitað, að það hefir verið uppi, og er enn, viðleitni til að hnekkja starfsemi Eimskipafél. Og ég vil láta það koma fram um leið og ég greiði atkv., að ég er andvígur þeirri viðleitni.