26.04.1939
Sameinað þing: 11. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (3449)

92. mál, vöruflutningaskip til Ameríkuferða

*Finnur Jónsson:

Ég get ekki að því gert, að mér finnst þessi till. allmiklu víðtækari en hv. þm. S.-þ. vill gera úr með fyrirsögn sinni, því að það er nokkuð víðtækt mál, þegar talað er um að byggja stórt skip til vöruflutninga. Við hvað er miðað með orðunum „stórt skip“?

Þá er talað um að veita félaginu rekstrarstyrk í hlutfalli við þann rekstrarhalla, sem það kynni að verða fyrir á 10 árum. Nú getur enginn sagt um það, hve mikill rekstrarhalli kynni að verða á slíku skipi 10 ár fram í tímann. Það er jafnvel erfitt að segja fyrir um ástandið á næstu mánuðum, hvað þá næstu árum, og því er líka erfitt að segja, hverjir möguleikar séu á því að fá slíkt skip byggt. Það lítur nú ófriðlegar út en áður í álfunni, og getur jafnvel verið, að innan fárra daga, en ekki fárra mánaða, þurfi að fara að gera ráðstafanir til að verða undir það búinn, að siglingar teppist til útlanda. Ég hefi heyrt, að stríðsundirbúningsn., eða hvað hún nú heitir, hafi farið fram á það við Eimskipafél., að það leitaði fyrir sér um kaup á einu eða tveim flutningaskipum. Getur farið svo, að bráðlega þyrfti að grípa til slíkra ráðstafana.

Ég gæti hallazt að því að vísa þessu máli til hæstv. stj. eins og það liggur fyrir, ekki þó með þeim forsendum, að ekkert verði gert í því, heldur þeim, að hún hefji samvinnu við stj. flokkanna og geri það bezta, sem henni litist að gera, eftir ástæðum þeim, sem uppi kynnu að verða á næstu tímum.