26.04.1939
Sameinað þing: 11. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í D-deild Alþingistíðinda. (3509)

90. mál, ríkisábyrgð á láni fyrir Ólafsfjarðarhrepp

*Fjmrh. (Jakob Möller):

Það var af tilviljun, að ég mundi eftir l. um Sogsvirkjunina, en ég efast ekki um, að það eru mýmörg tilfelli, þar sem eins er ástatt, að þingið beint fyrirskipi að veita ábyrgðir. Þó 22. gr. fjárl. sé orðuð sem heimildir til ríkisstj., þá sannar það ekkert um, að það geti ekki verið mýmörg tilfelli, þar sem ábyrgðirnar eru fyrirskipaðar.

Hvað snertir heimildina til þess að ábyrgjast lán til hitaveitu, þá býst ég við, að ég hefði tekið upp í mig, ef fyrrv. fjmrh. hefði neitað að veita þá ábyrgð. En því verður ekki neitað, að hann hafði formlegan rétt til þess. Ég geri ekki ráð fyrir, að hv. þm. Barð. mundi ætla þeim mæta manni að gera sig sekan um slíkt, nema hann hefði nægilegar ástæður til þess, t. d. að fyrirtækið væri fjárhagslega hættulegt. Ef svo var ekki, þá var ekkert að óttast, þó ábyrgðin væri veitt.

Ég vil svo aðeins leiðrétta það, sem hv. 5. landsk. sagði hér áðan, að þeir, sem væru fylgjandi málinu, hefðu með fjmrh. í broddi fylkingar hindrað, að málið færi í n. Þetta er ekki rétt. Ég greiddi ekki atkv. á móti því, að málið færi í n.