26.04.1939
Sameinað þing: 11. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (3510)
90. mál, ríkisábyrgð á láni fyrir Ólafsfjarðarhrepp
*Einar Olgeirsson:
Herra forseti! Ég verð að þakka hv. þm. S.-Þ. fyrir síðustu ræðu hans, sérstaklega sem kommúnisti. Ef einhverjir hv. þm. hafa haft einhverjar ógurlegar hugmyndir um það, hvernig kommúnistar litu út, þá var sú mynd, sem hv. þm. S.-Þ. dró upp af þeim, mjög sannfærandi. Hann var að mála djöfulinn á vegginn, þegar hann var að lýsa því, hvað það væri ógurlegt, sem kommúnistar vildu framkvæma í þessu máli. Það væri hvorki meira né minna en að þeir vildu grafa ræturnar undan þingskipulaginu, og það einmitt í þessu máli. Hvað er það svo, sem um er að ræða? Það er verið að ræða um það að veita litlu sjávarþorpi ábyrgð ríkissjóðs fyrir 50 þús. kr. til að koma upp rafveitu. Þessi ósköp eru það, sem eiga að leysa upp þjóðfélagið.
Þannig fara formenn þessara stóru flokka að því að sjá ofsjónir og mála fjandann á vegginn, til þess að hræða menn. Ég held, að hv. þm. hafi með þessu músarholutali sínu slegið eitt það mesta vindhögg, sem hann hefir slegið hér á Alþ. Hann er hér að tileinka okkur alla þá menn, sem að þessari till. standa. Hann gefur okkur þar t. d. hv. þm. Eyf., sem eru kosnir með flestum atkv. af þm. Framsfl., og ýmsa mæta menn aðra.
Þessi taumlausi geðofsi hjá hv. þm. stafar af því, eins og komið hefir í ljós í dag og undanfarna daga, að hann hefir ekki reiknað rétt, þegar hann var að beita sér fyrir því að koma á þjóðstjórn. Hann hefir reiknað með því, að sömu handjárnin mundu halda og áður, svo að lítil klíka í fjvn. gæti komið sér saman um allt. Hann hefir reiknað með því, að hægt væri að taka ráðin af þm. En þegar þm. vilja sjálfir fara að ráða málunum og hætta að láta klíkurnar ráða fyrir sig, þá er það sem sjálfur klíkuhöfðinginn gerist svona æstur.