17.04.1939
Neðri deild: 41. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í B-deild Alþingistíðinda. (352)

71. mál, Varmahlíð í Skagafirði

*Sigurður Kristjánsson:

Ég vil styðja mál minni hl. n. Í sambandi við þetta mál vil ég minna á, að komið hefir fram á þessu þingi annað frv. um eignarnámsheimild, sem fór til sjútvn. Aðstaðan var að því leyti svipuð með það frv., að það skorti rök fyrir því. að það þyrfti að nota þær lendur, sem farið var fram á að fá eignarnámsheimild fyrir, og einnig skorti öll rök fyrir, að þessar lendur væru ekki fáanlegar með samningi. Sjútvn. komst að þeirri niðurstöðu, að það væri ekki rétt að ganga inn á þá braut að geta slíka heimild, nema Alþ. fengi full rök fyrir því tvennu, að þörf væri á hinu umbeðna landi, og hinsvegar, að erfiðleikar væru á að fá það með samningi.

Þessi hv. d. féllst á þessa skoðun sjútvn., og ég tel, að hið sama liggi fyrir hér. Að sjálfsögðu á skóli eins og sá, sem þarna er fyrirhugaður, að fá það land, sem hann þarf, og ég geri ekki ráð fyrir, að þeir, sem áður á Alþ. hafa samþ., að þessi héraðsskóli væri tekinn upp í héraðsskólalögin, vilji vinna á móti því, að þessi skóli fái það, sem hann þarf, bæði land og annað. Ég hygg, að það muni ekki standa stofnun skólans fyrir þrifum, þó horfið sé að því að útvega honum land eftir þeim leiðum, sem virkilega er ætlazt til. Það er alls ekki ætlazt til þess, að farið sé að taka lendur manna og aðrar eignir eignarnámi, nema því aðeins, að þörf almennings krefjist þess. Alþ. getur því ekki veitt slíka heimild með góðri samvizku, nema færðar séu sönnur á, að þessi nauðsyn liggi fyrir.

Því fer mjög fjarri, að þessi afstaða mín til málsins sé sprottin af nokkrum mótþróa gegn framgangi skólamálsins, því ég hefi áður mælt með því í hv. d. og greitt atkv. með því, að þessi skóli kæmist undir héraðsskólalögin. Ég er þess vegna samþykkur því, að honum sé sýnt það tillit, sem hann hefir þörf fyrir og þingið getur með góðu veilt. En ég vil ekki, að svona sé að farið, og ég mun því greiða atkv. samkv. till. minni hl. n.