25.04.1939
Sameinað þing: 10. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í D-deild Alþingistíðinda. (3539)
81. mál, vantraust á ríkisstjórninni, þingrof og kosningar
*Einar Olgeirsson:
Herra forseti! Ég vil leyfa mér fyrst af öllu að mótmæla því, hvaða aðferð er viðhöfð við umr. þessarar þáltill., að þjóðin skuli ekki mega hlusta á það úr þingsölum, sem þingflokkarnir hafa um það að segja, hvernig sú stjórn er mynduð, sem setzt er að völdum hér á landi. Og ég álít það allverulegt brot á anda þingskapanna, þar sem tekið er fram í ákvæðum um eldhúsumræður, að þeim skuli útvarpað, og á sama hátt skuli ræða um vantrauststill. Ég álit, að sú breyt., sem þingfl. hafa gert í sambandi við þessar umr., sé beinlínis brot á öllum þingræðisreglum, að neita því, að umr. þessum sé útvarpað úr sölum Alþ., að taka þessa till. út úr og ræða hana í útvarpssal. Ég álít þetta eitt af þeim mörgu dæmum um það, hvernig nú er verið að reyna að traðka þingræðið niður einmitt af þeim mönnum, sem kosnir eru til þess að vernda það.
Ég vil mótmæla því, að hæstv. forsetar standi ekki betur á verði um réttindi þingsins heldur en þeir hafa gert í þessu efni. Það er í öllum löndum, þar sem þingræðið er gamalt, að forsetar eru skoðaðir sem verðir þingræðisins og þm. gagnvart þeim öflum í þjóðfélaginu, sem vilja ganga á rétt þingsins, og slíkir aðilar eru með núverandi fyrirkomulagi oft dómsvaldið eða framkvæmdarvaldið. Og það hefir sýnt sig í „praksis“ á þessu Alþ. í vetur, að það er ríkisstj., sem ræður gerðum þingsins, en ekki þingforsetar. Og það virðist ekki nokkur skilningur á því hjá forsetum, að þeim beri að halda uppi heiðri Alþ; slíkt er í höndum ríkisstj., og það er ríkisstj., sem það er að kenna, að þetta mál fæst ekki rætt í útvarpi frá Alþ. Forsætisráðherra gætir hér ekki heldur skyldu sinnar gagnvart þingræðinu.
Ég býst við, að það setji nokkurt mark á þessar umr. að ekki hefir fengizt að útvarpa þeim, en við, treystum því, að fram fari útvarpsumr. um stj., en það er annað mál en vantraustsumr. hér á hæstv. Alþ. og bætir alls ekki úr því. Með tilliti til þessa, að tekin eru mál út úr sölum þingsins og rædd annarstaðar, mun ég ræða vantrauststill., sem við berum fram, og þá till., sem við berum fram um þingrof og nýjar kosningar. Ég hygg öllum þm. sé vitanlegt, að með hinni nýju stjórnarmyndun er gerð stærsta breyt. á viðhorfi stjórnmálafl., sem gerð hefir verið síðan á stríðsárum. Sameining þessara þingfl., sem barizt hafa hver gegn öðrum síðustu tuttugu árin, hefir nú gerbreytt stjórnarfyrirkomulaginu.
Þetta átti að gerast fyrir opnum tjöldum, frammi fyrir þjóðinni, og láta hana segja til um, hvað hún vildi. Þegar síðustu kosningar fóru fram, voru þessir þingfl. andstæðir og börðust hver gegn öðrum. Það kom ekki að neinu leyti fram við stjórnarmyndunina, sem notað var mikið sem agitation hjá Framsfl. og Alþfl., að þeir mynduðu ekki stjórn með Sjálfstfl. Það er því algerlega brugðið út frá þeim forsendum, sem voru til staðar þegar gengið var til kosninga 1937. Þjóðin hefir ekkert fengið um þetta að segja og varla fengið um þetta að heyra, nema rétt það, sem hægt hefir verið að ljóstra upp um það, og því síður fengið að fella sinn dóm. Eins og kröfur stjórnarinnar og hennar þingfl. eru, er einu sinni engin vissa fyrir því, á hvern hátt þjóðin fær að feila sinn dóm yfir þeim atburðum, sem nú hafa gerzt. Þeir halda því fram, sem að þessari stjórnarmyndun standa, að það sé ekki nema gott, að þessir þrír flokkar, sem hingað til hafa borizt á banaspjótum, eins og þeir kalla það, skuli hafa myndað sameiningarstj., sem nú eigi að skapa samvinnu á milli þeirra. Það má kannske nota orðið sameining, — en hvernig hafa þessir þingfl. verið, og hvernig hefir viðhorf þeirra verið gagnvart þeirri sameiningu, sem nú hefir verið gerð, og hvaða breyt. hafa orðið á aðstæðum þeirra? Hvernig stendur á, að til mála kom að skapa þessa sameiningu?
Ég vil beina þeirri spurningu til Alþfl. og Framsfl., hvort þeir hafi að gamni sinu haldið uppi sundrung meðal þjóðarinnar og barizt alveg sérstaklega á móti því, sem þeir kalla auðvaldsstéttina í landinu. Var þessi flokkabarátta aðeins leikfang og til þess að geta komið vissum mönnum í sérstakar stöður, eða voru til staðar hjá þjóðinni einhverjar ástæður, sem gerðu það að knýjandi nauðsyn að skapa þessa flokka? Hvernig sem þm. þessara flokka kunna að líta á þetta, þá hefir það verið meiningin hjá þjóðinni, sem staðið hefir bak við þá, sem eru bændur og verkamenn í landinu, að skapa með þessum flokkum sérstakt tæki í stéttarbaráttu og frelsisbaráttu þeirra, svo þeir sjálfir gætu notið ávaxtanna af sínum eigin verkum.
Síðan 1916 hafa bændur og verkamenn háð sína baráttu fyrir því að skapa þetta þjóðfélag. til þess að vinnandi stéttirnar fengju þann rétt, sem þær ekki höfðu og hafa ekki enn, og fyrir því, að auðnum, sem skapazt hefir hér á landi, sé réttlátlega skipt, og fyrir því, að sú stétt, sem sölsað hefir undir sig meginhluta auðsins, og þá sérstaklega hér í Reykjavík, yrði að láta af þeirri kúgun, láta undan með því að veita þessum stéttum full réttindi í þjóðfélaginu á þann hátt, að bændur og verkamenn gætu uppskorið af erfiði sínu það, sem þeir hefðu unnið til. Þetta var í stórum dráttum sú stefnuskrá, sem gerð var af þessum flokkum 1916. Í trúnni á það, að þessir tveir flokkar, Alþfl. og Framsfl.. héldu tryggð við bændur og verkamenn og berðust fyrir þeirra málstað, hefir nú meiri hluti íbúa þessa lands fylgt þeim í rúm 20 ár og stutt þá til að koma á ýmsum endurbótum, sem um tíma hafa verið framkvæmdar. Þetta hefir verið öll þessi ár tilgangurinn með baráttu Framsóknar og Alþfl. Þessu hafa þm. þeirra alltaf haldið fram við kjósendur sína, að þeir vildu berjast fyrir hinum vinnandi stéttum í landinu og á móti sérhagsmunastéttinni í Reykjavík. Þetta hefir verið uppistaðan í allri þeirra baráttu. Þetta hefir verið réttlæting þeirra fyrir því, hvernig þeir hafa sundrað þjóðinni á þessum tímum. Og það hefir ekki verið að þarflausu, að íslenzka þjóðin hefir verið klofin í mismunandi pólitíska flokka. Ástæðan er sú, að það hafa verið í landinu 2 stéttir með svo andstæðum hagsmunum sem verða mátti. Annarsvegar var sú stétt, sem hafði sérréttindin til gróða og valda í þjóðfélaginu, og hinsvegar vinnandi stéttin, sem hafði verið ofurliði borin. Þetta hefir verið grundvöllurinn í flokkaskiptingunni íslenzku fram að þessu. Það er því ekkert til, sem gæti réttlætt, að þeir flokkar, sem vinnandi stéttirnar hafa skapað til að berjast fyrir þeirra hagsmunum, hættu slíkri baráttu og færu að semja við þessa andstæðinga, fyrr en þeir væru ekki til, fyrr en stefna hinna vinnandi stétta hefði sigrað.
Ég vil í þessu sambandi vekja máls á því, hvernig var, þegar kosningarnar síðustu fóru fram, þegar þeir hv. þm., sem nú sitja hér, hlutu sitt umboð frá kjósendunum, og mínna þessa þm. á, hverskonar umboð það var, sem þeir þá fengu, hvort það var ekki umboð í sömu átt og 2 árin þar á undan, hvort það var nokkur tilslökun gefin um, að fara ætti að slá af þeim kröfum, sem alþýðan hafði fram að þessu gert, hvort tilgangurinn var sá, að fara nú að semja við íhaldið. Við þessar kosningar er gengið enn lengra en áður af hendi þessara flokka, skorað enn eindregnar en áður á vinnandi stéttirnar að standa með þeim á móti íhaldinu. Það er útmálað af þm. þeirra, hversu gífurleg hætta sé framundan við þessar kosningar, hvorki meira né minna en að íhaldið geti nú komizt til valda, menn eins og Jakob Möller og Ólafur Thors geti orðið ráðherrar. Í sambandi við þetta skrifar formaður Framsfl., hv. þm. S.-Þ., í Tímann svo hljóðandi grein, sem ég vil lesa upp með leyfi hæstv. forseta: „— — því að ef Eysteinn lætur af fjármálastjórn, þá tekur Ólafur Thors við. — Hvað finnst þjóðinni um þessi væntanlegu skipti á fjármálaráðherrum, ef „Breiðfylking allra Íslendinga“ fær meiri hluta? Langar þjóðina að missa handleiðslu hins færasta manns, sem völ er á í þessu efni? Langar þjóðina til að biðja hinn þroskaða fjármálamann að afhenda lyklana að ríkissjóði og valdið yfir bönkum landsins í hendur Ólafi Thors? Langar þjóðina til að fá fjármálaforustuna í hendur vinnulausum málrófsmanni, sem hefir stýrt fjármálum sinum með meiri óaðgætni og óafsakanlegri eyðslu en nokkur annar Íslendingur?“
Þannig er haldið áfram af hálfu þessara þm. fyrir síðustu kosningar og kosningarnar þar áður. Í Alþfl. var það útmálað 1934, hver skelfing dyndi yfir þjóðina, ef Jakob Möller yrði fjmrh. Í Alþbl. segir 4. júní 1934 í leiðara með fyrirsögninni: „Jakob Möller fjármálaráðherra !“, með leyfi hæstv. forseta :
,— — — Þeir hafa þegar myndað ríkisstjórn, og ráðherrarnir eiga að vera Ólafur (Thors), Magnús (Guðmundsson) og Jakob (Möller). Magnús á að halda sínu embætti, Ólafur á að vera forsætis- og atvinnumálaráðherra, en Jakob Möller fjármálaráðherra!
Það má fullyrða, að mikill meiri hluti þeirra manna, sem léð hafa Sjálfstfl. fylgi, mundu aldrei samþykkja það, að þessir menn stjórnuðu landinu, og þess vegna er það ábyrgðarleysi og svík við trúnað kjósenda sinna, að láta sér detta slíkt í hug.
En þannig verður ríkisstjórnin skipuð, ef íhaldið fær meiri hluta.
Jakob Möller fjármálaráðherra !!“
Nú er svo komið, að þeir menn, sem skrifuðu þannig, þeir styðja Jakob Möller sjálfir og telja ekki svik, ekki einu sinni við kjósendur sína.
Þá má minna á það, sem hæstv. forsrh. sagði fyrir síðustu kosningar á síðasta degi útvarpsumr. Þá kom hann fram með kosningabombu til þess að sýna, hversu mikill skörungur hann hefði verið að bjarga þjóðinni. Hann afhjúpaði, að Ólafur Thors hefði ætlað sér að láta fangelsa forsprakka verkalýðshreyfingarinnar, en hann hefði á síðustu stund sýnt þann skörungsskap, að koma í veg fyrir slíkt ódæði. Þetta var sagt við síðustu kosningar.
Sumir vilja kannske segja, að þetta hafi verið sagt fyrir kosningarnar, en nú séu ástæðurnar aðrar, þegar um það sé að ræða, að gjaldþrot vofi yfir sjávarútveginum. Ég skal því til að færa betur sönnur á mitt mál, til að sýna enn betur fram á, með hvaða forsendum þessir tveir flokkar höfðu gengið til kosninga, og hvaða afstöðu þeir hafa haft undanfarin ár, lesa upp fleira, sem ekki hefir verið samið fyrir kosningar, heldur eftir þær. Ég skal lofa hv. þm. að heyra, hvernig andinn var á þingi Alþýðusambands Íslands 1934, 12. sambandsþinginu, lofa þeim að heyra þær ályktanir, sem þá voru samþ. einróma út frá því ástandi, sem þá var, og út frá þeirri stefnu, sem Alþfl. ætlaði þá að taka. Kosningarnar fóru fram 1934, og „stjórn hinna vinnandi stétta“ ætlaði að laga stjórnarfarið, Alþfl. gaf út sína 4 ára áætlun og 1939 átti þessu öllu að vera lokið. Það er því eðlilegt, að þjóðin vilji nú 1939 gera þetta starf upp við „stjórn hinna vinnandi stétta“. Það er að vísu eðlilegt, að einstakir hv. þm. kæri sig ekki um að rifja þetta upp, en ég verð að gera það samt, með leyfi hæstv. forseta.
Í 4. kaflanum í ávarpi til íslenzkrar alþýðu segir svo:
„Á síðasta vetri og vori gerði alþýða þessa lands sér það ljóst, að kúgunar- og ofbeldisstjórn vofði yfir höfði hennar, ef hún fengi flokki stórútgerðar- og stórkaupmanna, Sjálfstfl., völdin í hendur. Hún skildi, að hættan á nazisma og gerræði hér á landi stafar fyrst og fremst frá foringjum þess atvinnurekstrar, sem lengst er kominn á braut auðvaldsskipulagsins, stórútgerðinni. Þeir foringjar höfðu um sama leyti sölsað undir sig öll völd í flokki borgarastéttarinnar, Sjálfstfl., bolað þar burtu þeim foringjum hans, sem enn aðhylltust lýðræði og hægfara íhald, en tekið sjálfir að boða opinberlega skoðanakúgun að dæmi ofbeldisflokkanna úti í heimi, sem höfðu rekið af höndum sér „rauðu hættuna“ með blóðugri byltingu, hneppt hinar vinnandi stéttir í þrældóm og fangelsað eða drepið foringja þeirra og annara frjálslyndra flokka eða hreyfinga.
Íslenzk alþýða til sjávar og sveita svaraði þessum hótunum við kosningarnar í sumar með því að mynda sjálfkrafa samfylkingu um lýðræðisflokkana, Alþfl. og Framsfl.
Sú samfylking og sigur hennar við kosningarnar var fyrsta svar alþýðunnar í landinu gegn hinni ofstopafullu, skipulögðu sókn, sem auðvaldið á Íslandi hafði hafið á bendur lýðræðinu og réttindum hinna vinnandi stétta.
Í 4 ára áætlun Alþýðuflokksins var í fyrsta sinni hér á landi bent á hina einu réttu vörn. sem beitt verður gegn einræðistilhneigingum auðvaldsins. Sú vörn er að ráðast á atvinnuleysið sem orsök þeirrar upplausnar í þjóðfélaginu, sem kemur fram á krepputímum og getur orðið til þess að sundra hinum vinnandi stéttum og ofurselja þær einræði og ofbeldi auðvaldsins.“
Ég býst við, að menn sjái hér greinilega, hver andinn hefir verið í Alþfl. og með hvaða stefnu flokkurinn hefir gengið til kosninga 1937.
Í 5. kaflanum er tekinn fyrir sjávarútvegurinn. Þar segir svo:
„Aðalatvinnuvegur landsmanna, sjávarútvegurinn, hefir lýst yfir fullkomnu gjaldþroti sínu. Forustumenn þessa atvinnuvegar, sem hafa stjórnað honum frá byrjun og bera einir ábyrgð á stjórn hans frammi fyrir þjóðinni, hafa lagt kapp á að sanna með eigin yfirlýsingum og skýrslum, að yfir honum vofi algert hrun og þar af leiðandi ægilegra atvinnuleysi og örbirgð alþýðunnar við sjóinn en þekkzt hefir hér á landi frá alda öðli.
Fyrir glæpsamlega stjórn þessara manna – en þeir eru hinir sömu, sem fyrir skömmu og enn í dag krefjast þess að fá óskorað einræðisvald hér á landi og búast til þess að beita því til að hneppa í fangelsi, ef ekki drepa, foringja vinnustéttanna, — er nú svo komið, að þúsundir manna mega búast við að missa atvinnu- og afkomumöguleika sína fyrir fullt og allt á næstu mánuðum og árum.“
Þetta er myndin, sem dregin er upp á alþýðusambandsþinginu 1934 af því, sem vofi yfir sjávarútvegi landsins.
Þannig er haldið áfram í seinni partinum: „Fyrir skömmu var birt skýrsla um efnahag og ástand sjávarútvegsins. Á þeirri skýrslu byggja forustumenn stóratvinnurekenda innan útgerðarinnar þá kröfu, að fyrirtækjum þeirra verði gefnar upp milljónir króna af skuldum þeirra og auk þess veittir opinberir styrkir til þess að annast fyrir þá það, sem þeir hafa látið ógert, öflun nýrra markaða og undirbúning til að taka upp nýjar verkunaraðferðir.
Um leið og foringi stórútgerðarmanna, sem jafnframt er foringi þess flokks, sem heimtar völdin í landinu og hótar að beita þeim til að undiroka andstæðinga sína með ofbeldi, ber fram þá kröfu, að vinnustéttirnar taki þannig við töpum og stórskuldum stóratvinnurekendanna, skýrir hann frá því, að atvinnutæki útgerðarinnar, fiskiskipin, séu undantekningarlaust orðin úrelt og ónýt, þau séu „ryðkláfar, fúaduggur og mannskaðabollar, sem enginn geti rekið nema með tapi, enginn vilji kaupa og ekkert eigi eftir nema að verða „líkkistur duglegustu sjómanna heimsins“.
Þannig skilur einstaklingsreksturinn við aðalatvinnuveg Íslendinga eftir 30 ára nær óslitið uppgangs- og gróðatímabil.
Þannig krefjast foringjar auðvaldsskipulagsins á Íslandi, að vinnustéttirnar taki við töpum auðvaldsins og beri byrðar þess.
Þannig lýkur uppgangsskeiði auðvaldsskipulagsins á Íslandi. Framfarirnar eru á enda, en hnignun og afturför tekur við.
Auðvaldsherrarnir á Íslandi, sameinaðir í Sjálfstæðisflokknum svokallaða undir forustu hinna gjaldþrota stórútgerðarmanna, fara að dæmi hinna erlendu stéttarbræðra og búa sig til að svipta alþýðuna hinum dýrmætu lýðréttindum, vegna þess að þeir vita, að þeir hafa ekki lengur efni. á að veita þau alþýðunni, eigi þeir að halda þeim forréttindum, sem hið unga auðvaldsskipulag hefir látið þeim í té, — ef auðvaldsskipulagið sjálft á að standa“.
Ég býst ekki við, að þurfi að færa frekari sönnur á, hvernig viðhorf Framsfl. og Alþfl. var eftir kosningarnar 1934 og hvaða verkefni þeir álitu þá, að lægi fyrir þeirri ríkisstjórn, sem þá taldi sig stjórn hinna vinnandi stétta hér á landi, hvernig gengið var út frá því, að mál alþýðunnar fengju að komast í framkvæmd án þess að tekið væri tillit til þess, hvað þessir auðmenn segðu, og án þess að milljónaskuldum yrði velt yfir á þjóðina, enda tekur síðasti kaflinn, sem ég ætla að leyfa mér að lesa upp, alveg af skarið í þessu efni. Þar segir svo:
„En forráðamenn einkarekstursins á atvinnuvegum þjóðarinnar hafa fyrirgert réttinum til þess að veita atvinnulífinu forsjá eða forstöðu. Þá á ekki að spyrja ráða eða til þeirra að leita um bjargráð. Tímabil hins ótakmarkaða einkareksturs og einkaauðvalds á Íslandi á að vera á enda.
Fyrir tilstyrk hinna vinnandi stétta, alþýðunnar til sjávar og sveita, hafa völdin verið tekin af herrum auðvaldsskipulagsins íslenzka. Og hún vill, að völdunum sé beitt gegn þeim. Henni er orðið það ljóst, að hún á nú fyrir höndum úrslitabaráttu fyrir atvinnu sinni, frelsi og lífi og vill berjast til þrautar undir forustu Alþýðuflokksins. Hún skilur, að ef hún bíður ósigur í þeirri baráttu, vofir yfir henni ekki aðeins atvinnuleysi og örbirgð, heldur einnig ófrelsi og kúgun um ófyrirsjáanlegan tíma. Hún veit, að ef sleppt er því tækifæri, sem nú er fyrir hendi, meðan stjórn lýðræðisflokkanna fer með völdin í landinu, til þess að koma nú þegar nýju skipulagi á allt atvinnulíf þjóðarinnar samkvæmt fyrirfram ákveðinni áætlun, er miði að því að tryggja hverjum þeim, sem vinna vill, atvinnu, og að leggja þannig grundvöll að nýju þjóðskipulagi í anda jafnaðar- og samvinnustefnunnar með fullkomnu lýðræði í stjórnmálum og atvinnumálum, þá bíða hennar sömu örlög og alþýðunnar í þeim löndum, sem nú eru ofurseld ofbeldis- og einræðisstjórnum auðvaldsins.
Fyrir því skorar 12. þing Alþýðusambands Íslands á flokka þá, sem fara með völdin í landinu, að neyta valdanna til þess að forða alþýðu þessa lands frá þeim örlögum og heitir til þess fulltingi þeirra mörgu þúsunda vinnandi manna og kvenna, sem Alþýðusambandið skipa, og öllu því harðfylgi, er alþýðusamtökin hafa yfir að ráða.“
Þetta voru samþykktir, sem gerðar voru eftir kosningarnar 1934, eftir þann glæsilegasta kosningasigur, sem alþýða landsins þá hafði unnið. Og nú 1939 er þetta 4 ára tímabil á enda, sem áætlunin átti að gilda fyrir. Og þá liggur fyrir íslenzku þjóðinni að gera upp þetta tímabil og segja til um, hvernig henni finnist þeir flokkar, sem hún fékk völdin í hendur 1934 og 1937, hafa farið með það pund, sem þeim var þá fengið. Nú hefði verið sjálfsagt að leggja þetta fyrir þjóðina. En þá fara flokkarnir inn á þessa braut og skjóta sér undan þessari skyldu, neita að láta fara fram kosningar, neita að spyrja þjóðina, heldur ganga til stjórnarsamvinnu við íhaldið.
Það hefir að vísu mátt sjá, hvernig á síðustu þingum hefir smáfærzt í þessa átt. Sérstaklega hefir það verið augljóst í sambandi við þær deilur, sem staðið hafa í sambandi við síldarverksmiðjurnar. 2–3 síðustu þingin hefir staðið barátta um það mál og smásaman verið að færa sig lengra og lengra upp á skaftið, og nú nær þetta hámarki sínu, þegar hv. þm. G.-K. er settur yfir þessar verksmiðjur. Það er augljóst, hversu mjög þetta og annað eins var fjarri skapi þessara flokka, þegar þeir gengu til kosninganna 1934 og 1937, og vil ég í því sambandi varpa fram þeirri spurningu, hvort nokkur breyt. hafi orðið, sem réttlæti þessi umskipti. En það þarf ekki að spyrja. Það þarf ekki að færa sönnur á, að á þessum síðustu árum hefir engin sú breyt. orðið á þjóðfélagsfyrirkomulaginu, sem hafi gefið þessum flokkum ástæðu til að slá svo mjög af sinni stefnu, — það er síður en svo. Það er vitanlegt, að á síðustu árum hafa verið samþ. hver l. á fætur öðrum, sem hafa gengið á rétt þessara stétta, sérstaklega verkalýðsins. Það hefir verið dregið úr þeim hagsbótum, sem verkamenn höfðu fengið, t. d. í húsnæðismálunum, en þær réttarbætur voru einna þýðingarmestar af því, sem þessir flokkar komu í gegn á sinum bezta tíma, fjárveitingar, sem tryggðu verkamönnum og bændum góðar íbúðir. Úr þessu hefir verið sífellt dregið á síðustu árum, enda hefir farið svo, að þrátt fyrir það, að kjallaraíbúðir séu bannaðar, þá hafa þær vaxið margfaldlega á síðustu árum. Þá þarf ekki að minna á, hvernig atvinnuleysið er. Lífskjör þessara stétta hafa versnað, — það vita allir. Það er því langt í frá, að þessar stéttir hafi nokkra ástæðu til að semja frið við auðvaldsstéttina í landinu.
Það, sem hefir gert að verkum, að þessir 2 flokkar hafa alveg gefizt upp og brugðizt yfirlýstri stefnu sinni frá undanförnum árum, er það, að auðvaldsstéttin íslenzka hefir á sinn hátt sett hnefann í borðið. Það mál, sem þessir flokkar sameinuðust um, var gengismálið. Afsökunin, sem fram var borin, er sú, að ekki hafi verið annað mögulegt. Af hverju? Af því, að það var komið gjaldeyrisverkfall. Mennirnir, sem réðu yfir framleiðslutækjunum og gjaldeyrinum, héldu honum úti, létu ekki flytja hann heim. Hér var því um tvennt að velja. Annaðhvort að sýna auðmannastéttinni í tvo heimana og kný ja hana til að láta undan, eða þá að hinir pólitísku flokkar gæfust alveg upp. Þeir hafa oft látið undan áður, en nú hafa þeir í raun og veru alveg gefizt upp. Þetta hefir sérstaklega komið í ljós í þeirri baráttu, sem fram hefir farið um þessa stórútgerð, eða þann hluta hennar, sem mest vald hafði í þessu landi, sem sé Kveldúlf. Í síðustu kosningum var alveg sérstaklega barizt um Kveldúlf. Það var aðaltilefni þingrofsins og kosninganna 1937, að Alþfl. þótti Framsfl. ekki taka nógu skörulega á þeim málum. Þessir flokkar lögðu til kosninga 1937 og sögðu þjóðinni, að allt frelsi hennar væri í voða, ef íhaldið kæmist í meiri hluta, og þá mundi Kveldúlfur beita alþýðuna órétti og allskonar slæmu valdi. En eftir þann kosningasigur, sem þjóðin gaf þessum flokkum þá, hafa þeir alveg gefizt upp fyrir þessu sama valdi nú. Þannig hefir verið stefnt í þjóðmálunum fram að þessu. Við höfum séð, hvernig þessir 2 flokkar hafa smátt og smátt látið undan. Þeir hafa síðan síðustu kosningar smátt og smátt verið að hvika meir og meir frá þeirri stefnu, sem þeir voru kosnir til að framfylgja. Þeir hafa við hverjar kosningar tekið dýpra og dýpra í árinni og sífellt hamrað róttækar á því, að þjóðin yrði að kjósa þá, og hver hætta vofði yfir þeim, ef íhaldið kæmist að völdunum. En svo þegar þeir hafa fengið sigurinn, þá byrja þeir að slá af, og nú slær samvizkan þá svo vegna afsláttar þeirra, að nú þora þeir ekki að leggja til kosninga, vegna þess að þeir vita, að nú duga engin undanbrögð. Nú standa þeir afhjúpaðir og verða að hljóta sinn dóm fyrir, hvernig þeir eru, en ekki hvernig þeir þykjast vera. Það, sem þeir nú setja von sína á, er, að þeir geti, þegar þar að kemur, leikið einhvern þann leik, sem gæti blekkt kjósendur landsins.
Ég hefi rakið þetta með tilliti til þess, að stj. er enn svo ung, að verk hennar eru ekki það mörg, að hægt sé að byggja vantraust á þeim framkvæmdum, sem hún þegar hefir gert. En það er þó ástæða til að minnast á það mál, sem hún hefir sameinazt um, en það er gengismálið, en þar sem það hefir verið rætt allmikið bæði í þinginu og útvarpinu, þá skal ég ekki fara langt út í það nú, en það mál sýnir, eins og sannað hefir verið með tilvitnunum í það, sem þessir flokkar hafa skrifað, hversu greinilega þeir hafa brugðizt því, sem þeir lofuðu fyrir síðustu kosningar. Ég býst við, að ef framsóknarmenn eða þessir þingflokkar taka til máls, þá muni þeir vitna í samþykkt, sem gerð var á miðstjórnarfundi þeirra áður en þing hófst. En ég veit, að á þeim fundi var andinn í þeim flokksmönnum, sem voru utan af landi, mjög eindregið á móti hverskonar undanlátssemi gagnvart Kveldúlfi.
Ég þarf ekki að ítreka þær hátíðlegu yfirlýsingar, sem flokkarnir gáfu fyrir kosningarnar. Þær munu flestum í fersku minni. Sérstaklega minnist ég ræðu, sem hv. þm. Seyðf. flutti þá í útvarpið, þar sem hann tók sérstaklega fram það, sem Alþfl. ætlaði að varðveita. Það var ekki aðeins lýðræðið, verkfallsrétturinn og fullkomin andstaða gegn ríkislögreglu, heldur og margt fleira, en nú hefir flokkurinn kastað þessu öllu fyrir borð. Verkalýðurinn hefir verið sviptur verkfallsréttinum og ríkislögregla kvað vofa yfir. Stjórnarmyndunin hefir og orðið með þeim hætti, að það hefir ekki verið lagt undir svo mikið sem eina einustu stjórn í nokkru verklýðsfélagi að leita samþykkis félaganna eða spyrja þau, hvort þau óskuðu eftir samsteypustjórn eða ekki. Eina afsökunin, sem foringjar flokksins hafa í þessu efni, er sú, að þeir eru slitnaðir úr tengslum við fólkið. En þar í liggur einmitt hættan. Þá má og minna á það, að um 3/4 hlutar af þm. Sjálfstfl. og um 2/3 hlutar Framsfl. eru starfsmenn ríkisvaldsins og eru nú notaðir á móti þeirri alþýðu, sem þeir eiga að vinna fyrir. Hv. þm. Seyðf. sagði og nýlega í ræðu, að Alþfl. hefði orðið að fylgja gengisfallinu af því að um aðra leið á þinglegum grundvelli til viðreisnar sjávarútveginum hefði ekki verið að ræða. Alþfl. varð svo sem að fljóta með, hvern fjandann sem átti að gera. Þetta er saga, sem alltaf endurtekur sig, — alþýðuflokksmennirnir geta ekki hugsað sér annað en vera með stjórninni, á hverju sem veltur, og í þessu liggur einmitt spillingin. Að vera í stjórnarandstöðu getur þessi flokkur ekki látið sig dreyma um, hvað þá meir. Annars verð ég að láta í ljós hryggð mína yfir því, hversu fádæma lin þau öfl eru innan Alþfl.-brotsins, sem eru eða hafa verið á móti þjóðstjórninni. Það er dálítið á annan veg hér en þegar Mac Donald stofnaði þjóðstjórnina í Englandi 1932. Þá gekk meiri hluti enska alþýðuflokksins þegar á móti henni.
Það er alls ekki hægt að áfellast hv. þm. G.-K., þó að hann sé með myndun stjórnar, sem vill gefa stórútgerðinni eftir fleiri milljónir kr. af fé alþýðunnar og banna, að kaup verkamanna hækki í eitt ár. Hæstv. núv. fjmrh. hefir jafnan greitt atkv. hér á Alþingi með brtt. frá okkur, sem gengið hafa í þá átt að auka framlag til atvinnubóta. Hæstv. ráðh. hefir óhræddur staðið með okkur í þessu efni.
Ég vil af þessum ástæðum beina þeirri fyrirspurn til hans, hvort hann vilji nú ekki athuga í sumar, þar til þing kemur saman í haust, hvort ekki muni nú rétt að taka upp þær 750 þús. kr. frá ríkinu til atvinnubóta, sem við höfum verið að reyna að fá á undanförnum þingum, og ennfremur hvort hann vilji nú ekki láta verða úr þeim loforðum Sjálfstfl. að skera niður bitlinga svo um muni. Um þetta hefir ekki vantað stór loforð í ræðum og ritum sjálfstæðismanna, og getur því ekki talizt nema eðlilegt, þó að um þetta sé spurt. Vænti ég að fá skýr svör undir þessum umr., hvað þessir herrar ætla að gera í þessu máli o. fl., þó að ég að sjálfsögðu búist ekki við neinu góðu úr þessari átt, og má í því sambandi minnast á grein í Morgunblaðinu nú ekki alls fyrir löngu, þar sem svo er að orði kveðið, að ef fara ætti að endurreisa sjávarútveginn á heiðarlegum grundvelli, þá væri eins gott að fá kosningar strax.
Þá má og minna á aðra grein í Morgunblaðinu, þar sem talað var um, að fá þyrfti einhvern íslenzkan Mac Donald í þjóðstjórnina; þó skrifaði hv. þm. S.-Þ. í blað sitt, að menn myndu ekki vita það hér, hvert væri álit fólks almennt á Mac Donald í Englandi. Hér hefir það skeð, að lífskjör fólksins hafa verið gerð miklu erfiðari en þau voru áður, og það hefði enginn íhaldsflokkur þorað að gera nema með því eina móti að hafa framsóknarmenn og alþýðuflokksmenn með. Þá hefir og þessi nýja stjórn gert það, að banna kauphækkun, — já, og það gerði hún áður en hún var fullsköpuð. Hverjar afleiðingar þetta kann að hafa, er enginn kominn til þess að segja um, og ekki heldur hitt, hvort því verður ekki slegið á frest að afnema bannið við kauphækkun, eins og t. d. um byggingu verkamannabústaðanna. Með þessu er beinlínis verið að setja íslenzka alþýðu á lægra menningarstig en t. d. alþýðu manna á Norðurlöndum.
Þá er það og talið, að komið hafi fram krafa frá Alþfl. um ríkislögreglu, eða að hann styðji slíka kröfu að minnsta kosti. Hér stefnir því allt í þá áttina að skerða rétt þingsins og þingræðisins sjálfs. Fái stjórn þessi því að halda áfram, er víst, að allt stefnir hjá henni í einræðisáttina, og því á móti þeim lýðræðisanda, sem kom fram við síðustu kosningar. Við krefjumst því þingrofs og nýrra kosninga.