25.04.1939
Sameinað þing: 10. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í D-deild Alþingistíðinda. (3542)

81. mál, vantraust á ríkisstjórninni, þingrof og kosningar

*Flm. (Héðinn Valdimarsson) :

Ég vil biðja hæstv. forseta að fella úrskurð um það, hvort þingsköpin ætlast ekki til þess, að fram fari útvarpsumr. um vantrauststill. Mér hefir verið

bent á, að ein af ástæðunum til þess, að ekki eru hafðar útvarpsumræður, sé sú, að hæstv. félmrh., sem er nýbúinn að tala, mundi ekki eftir þingsköpum fá að tala í útvarp, nema forsrh. úrskurðaði hann meðlim þingflokks. Það væri gott að fá svar við þessu. Hitt er greinilegt af umr., að það er raunverulega hæstv. forsrh., sem hefir gripið fram fyrir hendurnar á þingflokknum, fyrst og fremst með því að segja, að ríkisstj. óski útvarpsumr. að loknu þingi. Upphaflega átti ekki að kalla saman þingflokkana til að ræða það, en var síðar gert. Það er kannske mannlegt að vilja ekki láta kjósendurna heyra neitt, en ég álít það brot á þingvenju.

Þá vil ég beina þeirri fyrirspurn til ríkisstj., hvort ekki eigi að veita tvær stöður, lögreglustjórastöðuna og skattstjórastöðuna. Það er óviðeigandi að halda þeim opnum svo lengi.

Ég mun svo snúa hér að ræðu hæstv. ráðh. en vil rétt stuttlega minnast á eitt mál. Í þeim ræðum, sem haldnar hafa verið af hálfu stjórnarflokkanna, var að vísu getið um ýmisleg mál, en allt var það loðið mjög, og hvergi hefir komið fram, að neinn málefnasamningur hafi verið gerður. En það er gömul regla á þingi Alþfl., að samþ. að eigi að vera málefnasamningur. Það væri æskilegt að fá að vita, ef eitthvað annað hefir verið samþ. en látið hefir verið uppi.

Það var minnzt hér á sjálfstæðismálið, og af því að það hefir alveg legið niðri á þessu þingi, vil ég drepa á það. Það hefir áður verið rætt, hvað gera skuli 1940, og liggur fyrir shlj. álit frá öllum flokkum um, að samningunum við Dani skuli sagt upp og Ísland verða lýðveldi. Utanríkismálanefnd hefir átt að hafa þetta mál til meðferðar, en hún hefir enga skýrslu gefið á þessu þingi, og er ekki útlit fyrir, að nefndin hafi nokkurn hlut gert í sjálfstæðismálum landsins, eða til að reyna að tryggja friðhelgi þess. Úr því nú að stjórnarflokkarnir þykjast vilja setja sjálfstæðismálin hátt, vil ég spyrja: Hvaða leið ætla þeir að fara? Er það þeirra meining að segja upp samningunum við Dani, eða vilja þeir halda óbreyttu konungssambandinu? Ég álít, að á ófriðartímum geti sambandið við Dani verið okkur hættulegt og að við eigum að losa okkur við það. En ef stjórnarflokkarnir ætla sér ekki ákveðna stefnu í þessu máli, til hvers er þá verið að nefna það?

Þá talaði hæstv. forsrh um, að þetta væri óþinglegasta vantrauststill., sem komið hefir fram. En ég verð að spyrja: Hvers vegna situr hæstv. forsrh. hér á þingi? Heldur hann, að hann sé sjálfkjörinn? Nei, hann þarf að bera ábyrgð gagnvart kjósendum sinum. En hann hefir gengið á snið við vilja kjósendanna og tekið nýja stefnu án þess að spyrja þá. Hér er því um mikilvægt atriði að ræða, sem sé rétt fólksins í landinu gagnvart þinginu. Það er ekki mikið lýðræði eftir í landinu, ef þm. á að haldast uppi að svíkja öll sín loforð til kjósenda sinna. Ef þeir eru drengskaparmenn, eiga þeir að sjá, að þingrof og nýjar kosningar er eina rétta leiðin, þegar um svo stórar stefnubreyt. er að ræða. Hæstv. forsrh. og félmrh. segja, að viðhorfið sé öðruvísi nú, eftir að okkar flokkur er stofnaður. En okkar flokkur óskar einskis annars frekar en að fá staðfestingu fólksins á tilverurétti sínum. Ég skil það vel, að hæstv. félmrh. vilji ekki ganga þessa leið, því að hans kjósendur eru fáir.

Hæstv. félmrh. vildi fara að afsaka afstöðu flokks sins. Ég vil spyrja hann: Hefir hann fengið samþykkt frá sinni eigin flokksstjórn um að ganga í þessa ríkisstjórn og vera með gengisfallinu?

Það var minnzt á nágrannalöndin í þessu sambandi. Mér þætti gaman að sjá, hvar sósíalistar hafa sameinazt íhaldi. Ég þekki bara eitt dæmi í sögunni, og það var þegar Mac Donald gekk með íhaldsflokknum brezka. En þar var sá munur, að í sjálfri flokksstjórninni hafði Mac Donald ekki meiri hluta.

Hæstv. ráðh. talar um samvinnuna á Norðfirði um bæjarmál. Þar er allt öðru máli að gegna. Samningurinn þar var til þess að komast út úr óstjórn, sem skjaldborgin var búin að koma öllu í. Ef þeir bara segja kjósendunum fyrirfram, hvers sé að vænta, þá er allt í lagi. — Hæstv. ráðh. talar mikið um lýðræði. Það væri æskilegt að vita, hvernig er umhorfs í hans flokki og hvað margir hafa stutt þessa braut, sem hann er kominn út á. Þó að enginn flokkur sé eins illa staddur og þetta auma Alþfl.-brot, gildir það sama að nokkru leyti um hina flokkana. Ég hygg, að meiri hl. miðstj. Sjálfstfl. hafi verið með þessu, en Framsfl. hafði ekki gert ráð fyrir því. Hér er því meira í húfi en svo, að um sé að ræða eitthvert smámál. Enginn maður í þessum sal veit, hve marga kjósendur ríkisstj. hefir á bak við sig. Hún er því fullkomlega ólýðræðisleg, og enginn veit þetta betur en ríkisstj. sjálf. Hér hefir verið brotið í bág við allar reglur um myndun lýðræðisstj., og flokkarnir hafa kastað stefnum sinum fyrir borð. Svo hlýtur að fara þannig, að annaðhvort gengur þetta brot Alþfl. alveg á vald sjálfstæðismönnum, eða þá að þarna verður alveg óstarfhæf ríkisstj., þar sem hver togar til sín. Ef verið er að tala um samstarf á hættulegum tímum, þá á að hetja það samstarf að neðan og ganga til kosninga, en ekki tromma saman 5 mönnum, sem langar til að setjast í valdastól. Ég vil segja, að margar vantrauststill. hafa verið bornar hér fram með góðum rökum, en engin eins og sú, sem hér liggur fyrir.