25.04.1939
Sameinað þing: 10. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í D-deild Alþingistíðinda. (3547)

81. mál, vantraust á ríkisstjórninni, þingrof og kosningar

*Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Ég skal verða við því að svara þessum fyrirspurnum. Það er búið að veita annað embættið, embætti skattstjóra, er veitt var skattstjóranum, sem var settur. — Um embætti lögreglustjóra hefir engin ákvörðun verið tekin. Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að gefa frekari yfirlýsingu um stefnu stj. en ég hefi þegar gert.