25.04.1939
Sameinað þing: 10. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í D-deild Alþingistíðinda. (3567)
91. mál, sala eða leiga Þórs ogHermóðs o. fl.
*Forsrh. (Hermann Jónasson) :
Út af fyrirspurn hv. þm. Ísaf. skal ég taka það fram, að það er rétt, að Vestfirðingar hafa boðizt til að leggja fram að mig minnir 40–50 þús. kr. til að láta smíða bát, sem í senn gæti verið björgunarskip og gæzluskip. Samningum um þetta mál er ekki enn lokið. En ég vil geta þess, að Pálmi Loftsson, forstjóri skipaútgerðar ríkisins, telur þetta skynsamlega lausn og mun vera henni meðmæltur. Eftir því, sem ég hefi litið til um þetta mál, er ég einnig þeirrar skoðunar, eftir lauslega athugun. Ég er því fylgjandi, að sú leið verði farin að taka þessu tilboði, ef samningar nást um einstök atriði, og verði málið þá tekið fyrir á næstunni.