25.04.1939
Sameinað þing: 10. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í D-deild Alþingistíðinda. (3573)
91. mál, sala eða leiga Þórs ogHermóðs o. fl.
*Jóhann Jósefsson:
Herra forseti! Það er aðeins stutt aths., sem ég ætla að gera. Ég vildi aðeins minnast á eitt atriði í sambandi við þetta mál. Hv. form. fjvn. (JJ) gat þess, að Vestmannaeyingar hefðu ekki á undanförnum áram greitt tillag til útgerðar Þórs eins og upphaflega hefði verið tilskilið. Þetta er rétt, en þessi skylda var látin falla niður af dómsmrn. eftir till. sjútvn., enda þótt Alþ. á sínum tíma hefði samþ. það, og dómsmrn. skerti ekki að neinu leyti annan rétt Vestmannaeyinga til þessa skips. Þegar sá úrskurður dómsmrn. var kveðinn upp, var tekið tillit til þess, að Vestmannaeyjabær hefir orðið fyrir ákaflega miklum fjárútlátum til útgerðar skipsins meðan það var í einkaeign, og jafnvel líka eftir að það var farið að hafa miklar ferðir sem strandherskip fyrir ríkið. Ég vildi gefa upplýsingar um þetta fyrir hv. form. fjvn.