30.03.1939
Efri deild: 29. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í D-deild Alþingistíðinda. (3664)

41. mál, talstöðvar í fiskiskipum o. fl.

Atvmrh. (Skúli Guðmundsson) :

Eins og flm. þessarar fyrirspurnar tók fram í sinni ræðu, var hér í þessari d. á síðasta þingi, 2. maí 1938, samþ. þál. um lækkun leigu talstöðva í fiskiskipum, svo hljóðandi:

Ed. Alþ. skorar á ríkisstj. að hlutast til um : 1. að afnotagjald af viðtækjum í fiskiskipum falli niður.

2. að leiga eftir talstöðvar lækki niður í 50 kr. á ári.

3. að strandargjald fyrir skeyti til fiskiskipa verði fært niður í 5 aura á orðið.

4. að leigjendum talstöðva verði framvegis ekki gert skylt að tryggja tækin fyrir hærri upphæð en 300 kr.“

Eftir að síðasta þingi lauk tók ríkisstj. vitanlega þetta mál til athugunar, og að þeirri athugun lokinni sá ráðuneytið sér ekki fært að hlutast til um, að þessar áskoranir yrðu teknar til greina eins og sakir standa. Mun ég gera grein fyrir því, af hverju þetta stafar.

Það eru um það bil 7 ár síðan landssíminn fór að búa til litlar firðtalstöðvar og gera tilraunir um nothæfni þeirra í bátum og fiskiskipum. Þessar tilraunir tókust vel og talstöðvar þessar urðu brátt vinsælar. Jafnframt óx eftirspurnin fram yfir það, sem hægt varað fullnægja. Eins og hv. þm. Vestm. tók fram, munu nú vera komnar slíkar stöðvar í á 3. hundrað báta, en jafnframt þessu hefir verið komið á nýju strandarstöðvakerfi, en það er nauðsynlegt til þess að bátar geti fengið afgreiðslu við land hvar sem þeir eru staddir.

Það þarf að kosta nokkru til að fullkomna þessar stöðvar, sem landssíminn hefir látið búa til og eru ætlaðar litlum skipum og starfræktar af mönnum, sem hafa litla þekkingu á raffræði og raftækjum og kunna lítið til starfrækslu slíkra stöðva. Það er reynt að gera tækin þannig úr garði, að ekki hljótist slys eða vandræði af starfrækslu þeirra, ennfremur að þau séu spör á raforku, ódýr í rekstri og að hægt sé að breyta þeim, ef með þarf. Tæki, sem fullnægja þessum skilyrðum, er ekki hægt að fá erlendis með sambærilegu verði og er á þeim, sem smíðuð eru hér, enda er firðtalsþjónusta á svo smáum skipum óþekkt annarstaðar í Evrópu en hér.

Landssíminn hefir leitazt við, eftir því, sem fjárhagurinn leyfir, að fullnægja eftirspurninni eftir slíkum stöðvum og að hafa þær sem traustastar og straumsparastar, og undirbúið og gert ýmsar endurbætur á þeim. Nú þegar er lokið við að búa svo um þessi tæki og loftskeytastöðina í Reykjavík, að það geta farið fram samtöl milli bátastöðva við Suðvesturland og talsímanotenda, hvar sem er á landinu. Landssíminn hefir og til athugunar og undirbúnings samskonar fyrirkomulag á öðrum loftskeytastöðvum kringum land, og ennfremur ódýran útbúnað, er gerir viðtæki bátanna jafnframt að miðunartækjum. Ennfremur fjölgun fastra öldulengda fyrir bátstöðvar, nákvæmari bylgjustillingar, ásamt ýmsum fleiri endurbótum.

Sem kunnugt er, tekur landssíminn 120 kr. á ári í leigu fyrir sendistöðvarnar, en krefst ekki neins stofngjalds. Þótt þessi upphæð muni þykja nokkuð há, þá er hún aðeins lítið brot af því, sem talstöðvar eru leigðar á í nágrannalöndunum, auk þess, sem þar er einnig krafizt stofngjalds. Að fengnum upplýsingum get ég skýrt frá því, að sænska símamálastj. mun taka 600 kr. ársleigu og 600 kr. stofngjald fyrir minnstu talstöðvarnar, sem hún leigir, en í því er viðtæki innifalið. Í gjaldi landssímans hér er falið allt eftirlit, endurbætur og breytingar, svo og allt eðlilegt viðhald senditækisins og ýmiskonar leiðbeiningar og aðstoð, án aukagjalds. Telur póst- og simamálastjóri, að þessi árlegi kostnaður með viðhaldi og endurbótum nemi 70 til 80 kr. af ársleigunni. Eru þá eftir 40–50 kr. til fyrningar og vaxta af stofnkostnaði, og er það hlutfallslega mjög lítið. Það er talið, að þau tæki, er landssíminn leigir, — þar með eru ekki viðtækin, eins og hv. þm. Vestm. tók fram, þau eru keypt hjá viðtækjaverzluninni — kosti landssímann um 750 krónur. Hefir verið áætlað, að með því að fá slík tæki erlendis frá yrði kostnaðurinn 40–50% hærri. Það er sýnilegt, að ef síminn hefir ekki nema 40–50 krónur af tæki að meðaltali fyrir fyrningu og vöxtum af þessu fé, þá er ekki hægt að telja leiguna óeðlilega háa.

Eins og hv. þm. Vestm. sagði, — og um það er ég honum sammála, — þá er hér um mikið velferðar- og öryggismál að ræða, og einnig með tilliti til þess, að smáútgerðarmenn yfirleitt hafa ekki rúmar fjárhagsástæður, þá er sjálfsagt að setja þessa leigu svo lága, sem frekast er hægt, og það held ég, að landssíminn hafi gert, eftir þeim upplýsingum að dæma, sem ég hefi fengið. Það má ekki setja þessa leigu svo lága, að öll framþróun á þessu sviði stöðvist vegna þess, að ekkert fé sé til endurnýjunar á stöðvum, er ganga úr sér, nema með því að taka það af því fé, sem veitt er til nýrra stöðva, og ef stöðvunum fjölgaði, mundi hún ekki einu sinni hrökkva til.

Póst- og símamálastjóri hefir reiknað út, að þessi krafa í 2. lið þál., um að leigan verði lækkuð niður í 50 krónur, mundi gera en. 20000 kr. tekjurýrnun fyrir landssímann á yfirstandandi ári. Nánar tiltekið 21000 kr., ef gert er ráð fyrir 300 bátastöðvum, þar sem og eftirlit mundi aukast ettir því, sem stöðvunum fjölgaði.

Þá er í 3. lið þál. óskað eftir því, að strandargjaldið verði lækkað úr 30 aurum niður í 5 aura. Ef með orðinu „fiskiskip“ í þál. er átt við mótorbáta, þilskip og togara, mundi sú breyt. þýða lækkun á tekjum landssímans, sem næmi 30 þús. kr. á ári. Ég hefi fengið upplýst, að annarstaðar á Norðurlöndum muni þetta gjald vera 45 aurar, nema í Danmörku, þar sem það er 30 aurar, eins og hér, en aðeins fyrir dönsk skip. Af þessu er ljóst, að ef þetta væri framkvæmt, yrðu strandarstöðvarnar stór baggi á landssímanum og tekjur þeirra — með 5 aura gjaldinu — ekki nema lítið brot af þeim kostnaði, sem siminn hefir af starfrækslu þeirra.

Þá er gert ráð fyrir í þál., að leigjendum talstöðva verði framvegis ekki gert skylt að tryggja tækin fyrir hærri upphæð en 300 kr. Stofnkostnaður þeirra er meir en helmingi hærri, svo þetta mundi þýða það, að landssíminn yrði sjálfur að tryggja þær fyrir hinum hluta stofnkostnaðarins, nema að taka mikla áhættu á sig sjálfur. Ef miðað er við 300 stöðvar, mundi sú trygging nema allt að 9000 krónum.

Ég hefi ekki minnzt áður á 1. lið þál. vegna þess, að ég tel, að um það verði að gilda sömu reglur að því er báta snertir og aðra útvarpsnotendur í landi. Það er tæplega hægt að fara að gera þannig upp á milli manna. Það mun rétt, sem hv. þm. Vestm. benti á, að sumir bátaeigendur, sem hafa tæki í bátum sinum, hafi einnig útvarpstæki í landi. Þó munu einhverjir vera, sem ekki hafa það, og því erfitt að greina þar í milli.

Til viðbótar því, sem ég hefi nú þegar tekið fram um þetta efni, má geta þess, að með alþjóðaákvæði er talið nauðsynlegt að gera breytingar og endurbætur á bátatalstöðvum. T. d. starfar síminn nú að breytingum og endurbótum, sem miða að því að fjölga vinnubylgjulengdum stöðvanna og gera kallbylgjuna svo stöðuga og nákvæma sem auðið er, en það tryggir það, að stöðin heyrist betur þegar hún kallar og eykur þar með öryggið. Einnig verður komið fyrir í stöðvunum nýju spennitæki, sem á að koma í stað háspennurafhlaðnanna og gerir þannig rekstrarkostnaðinn minni en hann er nú. Póst- og símamálastjóri áætlar, að efni til þessara endurbóta kosti um 200 kr. í hverja stöð af þeim, sem fyrir eru. Hinsvegar er það að sjálfsögðu hugmyndin, að allar stöðvar, sem hér eftir verða smíðaðar, verði með þessum nýja og fullkomnari útbúnaði. Ekki verður heldur hægt að breyta öllum eldri stöðvunum á einu ári, heldur verður kostnaðinum skipt á nokkur ár. Telur póst- og símamálastjóri, að vegna breytinganna verði óhjákvæmilegt að fara fram á hærri fjárframlög en nú er gert ráð fyrir, til þess að meira fé fáist til viðbóta og viðhalds á stöðvunum.

Þá er nauðsynlegt að koma á þeim endurbótum, að strandarstöðvarnar verði það fullkomnar, að þær geti allar gefið talstöðvum bátanna samband inn á línukerfi landssímans, svo bátarnir geti talað við símanotendur í landi, hvar sem er á landinu. Þessi útbúnaður er nú eingöngu í Reykjavík, en þyrfti sem fyrst að koma bæði á Siglufirði og í Vestmannaeyjum, svo og einnig á Ísafirði og Seyðisfirði. Þá telur póst- og símamálastjóri einnig nauðsynlegt, að komið verði á strandarstöð í Höfn í Hornafirði, sem geti afgr. báta, sem þaðan fiska, og haft samband við skip, sem þurfa að koma þar við. Allar þessar breyt. hljóta að kosta mikið fé; t. d. er áætlað, að breytingarnar, sem gera þarf á stöðinni á Siglufirði, muni kosta um 13 þús. kr., og ennþá meira í Vestmannaeyjum, eða ca. 25 þús. kr.

Um síðasta lið þál., þá upphæð, sem leigjendur eigi að tryggja tæki sín fyrir, skal þess getið, að eftir nánari athugun á þessu máli hefir póst- og símamálastjóri komizt að þeirri niðurstöðu, að lækka mætti þá upphæð úr 1200 kr. niður í 850–900 kr., en lengra er ekki talið, að hægt sé að fara, samkvæmt þeim upplýsingum, sem gefnar hafa verið um stofnkostnað þessara tækja, en verði þessu komið í framkvæmd, lækkar vátryggingin um 25–30%.

Ég vil nú eftir að hafa gefið þessar upplýsingar almennt um málið, draga saman nokkrar þær athuganir, sem eru þess valdandi, að ráðuneytið taldi ekki fært að taka þessa þál. hv. Ed. til greina. Það kom í ljós við athugun málsins, að væri þetta framkvæmt, hefði það í för með sér tekjurýrnun fyrir landssímann, sem mundi nema ca. 60000 kr. á þessu ári, svo miðað sé við það. Hún hefði orðið eitthvað minni árið 1938, vegna þess, að stöðvarnar voru þá færri en nú.

Þegar þetta er athugað, finnst mér ástæða til að halda því fram, að meðferð till. í þessari hv. d. á síðasta þingi hafi verið með nokkuð öðrum hætti en æskilegt hefði verið. Ég verð að gera ráð fyrir, að hv. flm. þeirrar þáltill. muni hafa flutt hana með það fyrir augum. að nauðsynlegt væri — sem og rétt er — að greiða fyrir því, að sem flestir útvegsmenn ættu þess kost að fá þessi nauðsynlegu tæki í sína báta. Með tilliti til þess, að fjárhagsástæður margra þeirra eru mjög erfiðar, hafi svo till. verið flutt. Ég býst ekki við, að hv. flm. hafi verið ljóst, hve mikla tekjurýrnun fyrir landssímann þessi till. hefði í för með sér, en það hefir ráðuneytið falið næga ástæðu til þess, að ekki væri fært að taka hana til greina.

Í þessari hv. d. fékk till. fremur óþinglega meðferð. Um hana var aðeins ein umr., og hvorki var hún send fjhn.fjvn. til athugunar, né heldur póst- og símamálastjóra til umsagnar, sem þó hefði verið eðlilegt, þar sem það snertir svo mjög hans stofnun. Enda er ekki, hvorki í till.grg., gerð grein fyrir því, hve mikla skerðingu á tekjum og aukin útgjöld um er að ræða. og ekki mun það heldur hafa verið upplýst í framsögu málsins, þegar það var tekið fyrir í hv. d.

Þar sem ráðuneytið komst að þeirri niðurstöðu við athugun málsins, að framkvæmd till. mundi hafa í för með sér stórkostlega tekjurýrnun fyrir landssímann og raska þar með útkomunni á rekstri hans frá því, sem samþ. var í fjárl. á því sama þingi, og kippa fjárhagslega fótum undan falstöðvaþjónustunni og draga úr og torvelda endurbætur á stöðvunum, sem fyrir eru, taldi ráðuneytið ekki fært að láta þetta koma til framkvæmda.

Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð, en vænti, að hv. deild sé ljóst af því, sem ég hefi sagt, hverjar ástæður liggja til þess, að ekki var farið eftir þessari þingsályktun.