30.03.1939
Efri deild: 29. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í D-deild Alþingistíðinda. (3667)

41. mál, talstöðvar í fiskiskipum o. fl.

*Fyrirspyrjandi (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti! Hæstv. atvmrh. vitnaði nú í ræðu sinni til afskekktra sveitabýla, sem þyrftu eins nauðsynlega að hafa útvarp eins og bátarnir taltæki. Þetta er náttúrlega dálítið fjarskylt að jafna saman. Hitt skal ég viðurkenna, að það er nauðsynlegt fyrir þessi býli að hafa útvarpstæki. En þó að ég viti ekki til þess, að nein sérstök krafa hafi verið gerð af hálfu afskekktra býla á landinu um að fá linun á gjöldum til útvarpsins vegna sinnar legu, þá hefir þingheimi verið kunnugt um það, að ekki hefir verið horft í það að leggja fyrir tugi þús. kr. símalínur á landinu, sem ekki hafa komið nema kannske nokkrum tugum manna að notum. Það hefir ekki skort, að það hafi verið tekið fullt tillit til ýmissa afskekktra sveita landsins í þeim efnum.

Hvað hinu viðkemur, sem ég sagði, að mér þætti hæstv. ríkisstj. hafa lítið of smátt á þetta mál, þá er ég enn á þeirri skoðun. En því skal ég ekki neita, sem hæstv. ráðh. talaði um, að réttara hefði verið, að málið hefði komið til fjvn., þó að málið sé ekki svo stórt að mínu áliti, að ekki hefði með góðum vilja ríkisstj. mátt leysa það eftir þáltill. þeirri, sem gerð var. — Jæja, þá það. Ég skal lofa hæstv. ráðh. því, að fjvn. skal fá að taka afstöðu til þessa máls. fyrst hann hefir ekki getað mannað sig upp til þess að framkvæma vilja þessarar hv. d., sem kom fram í umræddri þál., síðan þingi var slitið á síðastl. vori. Ég geri ráð fyrir, að þeir, sem með þessu máli voru í fyrra, muni vera fylgjandi því enn og muni því vera hægt að koma málinu svo á framfæri, að sú góða fjvn. geti tekið það til meðferðar. Hitt vitum við báðir og skulum ekki orðlengja um það, að það hefir oft verið rifizt hér tímunum saman á hæstv. Alþ. um smávægileg útgjöld og togazt á um þau. En með eyðslu og óstjórn á stofnunum ríkisins hefir á einn eða annan hátt verið eytt tugum þús. kr. utan við ákvarðanir Alþ. og án þess að hv. fjvn. hafi nokkuð komið þar nálægt. Við hæstv. atvmrh. erum hvorugur þau börn, að við ekki vitum, að þetta hefir komið fyrir. En ef þetta er nauðsynlegt form á meðferð þessa máls og ríkisstj. telur sig ekki geta kippt þessu í lag, sem hér hefir verið til umr., að fiskibátarnir fái þessa linkind um gjöld sín vegna talstöðvanna, án þess að fjvn. fái að segja álit sitt um það, þá er ekki nema rétt og skylt fyrir þá, sem vilja berjast fyrir þessu máli, að koma því þannig á framfæri sem hæstv. atvmrh. hefir óskað eftir.