25.04.1939
Efri deild: 50. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í B-deild Alþingistíðinda. (385)
76. mál, verzlun med tilbúinn áburð og kjarnfóður
Frsm. (Páll Zóphóníasson):
Ég vil miklu frekar mæla með því fyrir mína parta, að frv. verði samþ. nú.
Hér eiga ekki síldarverksmiðjur ríkisins einar hlut að máli. Í landinu eru margar fleiri verksm., sem framleiða síldarmjöl, og án þess að ég skuli fara út í það, hvaða síldarmjöl það er, sem reynzt hefir slæmt, þá eru síldarverksmiðjur ríkisins a. m. k. ekki verstar í því tilliti. Merkið á pokunum frá þeim sýnir, hvaðan mjölið er, en það er ekki hægt að segja um mjölið frá öllum verksmiðjum á landinu, sem framleiða síldarmjöl og setja ekki einu sinni verksmiðjumerki á pokana. Og það lítur út fyrir, að sumt síldarmjöl, sem selt er til fóðurs, sé úrgangs síldarmjöl, sem alls ekki á að vera fóður. Þess vegna vil ég, að frv. verði samþ. nú, jafnvel þótt ég viðurkenni, að betur hefði átt að ganga til verks um þetta en hér er gert um það, hvernig öruggast sé að koma þessu fyrir í framkvæmdinni.