20.03.1939
Efri deild: 20. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í B-deild Alþingistíðinda. (414)
40. mál, búfjárrækt
Frsm. (Páll Zóphóníasson) :
Herra forseti! Búnaðarmálastjóri hefir með bréfi frá 13. marz sent Alþingi óskir búnaðarþings um breyt á l. um búfjárrækt frá 1931. Þessar óskir búnaðarþings hafa legið frammi í lestrarsal og hlotið þar númerið 134. Óskir búnaðarþings um breyt. á l. hefir landbn. tekið upp og fært í þann búning, sem þær nú liggja fyrir í á þskj. 62. Þar er um 3 brtt. að ræða, sú fyrsta við 11. gr. laganna og er um það, hve mikinn árlegan styrk nautgriparæktarfélögin geti fengið úr ríkissjóði, og er þannig, að félög, sem engar fitumælingar gera á mjólk, geti fengið 1 kr. styrk, reiknað á árskú, eða ef fitumælingar eru gerðar sjaldnar en þrisvar. Áður var þeim félögum reiknuð 1,50 í styrk á reiknaða árskú. Séu fitumælingar gerðar minnst þrisvar sinnum, sé styrkurinn kr. 1,80 á árskú. Sá styrkur var áður ákveðinn 2 kr. En þrjár mælingar gefa samt ekki fullnægjandi upplýsingar um fitumagn mjólkurinnar. Þegar 3 mælingar voru taldar nógar, var ástandið þannig, að það vantaði mjólk til að fullnægja markaðinum fyrir neyzlumjólk. Síðan þessi l. voru samþ., hefir viðhorfið að nokkru breytzt, bæði af því, að meðalnyt mjólkurkúnna hefir hækkað um 200 kg. á ári frá því, sem þá var, og svo vegna þess, að þeim hefir fjölgað um 1/3. Einnig hefir meiri mjólk komið á markaðinn vegna þess, að menn, sem áður höfðu engin ráð með að koma mjólkinni frá sér, hafa nú vegna bættra vegasambanda getað selt mjólk sína. Nú er markaðinum fyrir neyzlumjólk líka fullnægt og meira en það, því að úr nokkrum hluta mjólkurinnar hefir orðið að vinna afurðir, og þá er það undir því komið, hve mjólkin er feit, hvað mikið fæst úr henni af verðmætum afurðum. Þess vegna þarf að vinna að því að fá mjólkina bætta, fá hana feitari, en til þess er nauðsynlegt að gera fitumælingar það oft, að vissa fáist um fitumagn mjólkurinnar úr hverri kú, svo taka megi tillit til þess í kynbótastarfinu. Til þess að hvetja menn til þessa höfum við borið fram þessa brtt. við 11. gr., sem felst í 1. gr. frv. Þar er gert ráð fyrir, að styrktarstigin verði þrjú. Styrkur til þeirra félaga, sem gera engar mælingar eða færri en þrjár, lækkar úr kr. 1,50 í 1,00 á árskú. Þau félög, sem koma undir þetta, eru ekki mörg, en samt nokkur, sem engar mælingar hafa gert.
Þar næst er gert ráð fyrir þremur fitumælingum á ári. Þær gefa mikilsverðar bendingar, en styrk til þeirra á líka að lækka, úr kr. 2.00 í 1.811.
Svo er þriðja stigið fyrir þau félög, sem gera 6 fitumælingar eða fleiri. Úr því að mælingarnar eru orðnar 6, má fara að byggja á þeim, hvað mjólkin rannverulega er feit, og þá má fara að velja kýr til að ala undan lífdýr eftir því, hvað mjólkin er feit. Þau félög, sem gera 6 mælingar, geta fengið kr. 2.50 styrk á árskú.
Ennþá er ekki hægt að segja um, hvort þetta veldur auknum kostnaði fyrir ríkissjóð. Það yrði aldrei mikil hætta á, að allir færu að gera fitumælingar sex sinnum á ári, svo að hækkun styrksins til þeirra næmi nokkru stórfé, heldur mundi hún vinnast upp með lækkuninni hjá þeim, sem sjaldan mæla. — Þetta var um breyt., sem felst í 1. gr. frv.
Breytingin í 2. gr. er ósköp lítil. Í 43. gr. búfjárræktarlaganna er talað um, hvað margt hver félagsmaður megi eiga í kynbótafénu, –enginn einstakur má eiga þar fleiri ær en 30. En nóg þykir að binda þetta við það, að enginn einstakur megi eiga meira en helming af kynbótafé búsins. Ég sé ekki ástæðu til að útiloka þá, sem sem eiga yfir 30 ær, allt hvað það er ekki yfir helming. Búnaðarþing taldi þessa brtt. hiklaust til bóta.
Þá er loks brtt. við 13. gr. Í 1. línu hennar er prentvilla, „sauðfjárrekstrarbú“, sem á að vera: sauðfjárræktarbú, og vildi ég fara þess á leit við hæstv. forseta, að hún yrði leiðrétt án þess að sérstaka brtt. þurfi til.
Búfjárræktarlögin mæla svo fyrir, að sauðfjárræktarbúin megi vera átta. tvö í hverjum fjórðungi, og að þessi bú skuli njóta 800 kr. styrks á ári móti 400 kr. annarstaðar frá. Brtt. gerir ráð fyrir að lækka 800 kr. framlagið í 600 kr. Við það sparast 8x200 = 1600 kr. Þessi sparnaður er veginn upp í brtt. með því, að veita skuli allt að 2000 kr. til að verðlauna sauðfjárræktarbúin samkv. nánari ákvæðum í reglugerð, þar sem fara yrði eftir því, hve góðum árangri þau ná af starfi sínu og hve mikið selst af kynbótaskepnum þaðan. Eftirspurnin eftir þeim er einhver bezti mælikvarði á árangur búsins. Kostnaðarauki af þessu er aðeins 400 kr. á ári, og má vænta, að það verði til þess að gera samkeppni milli búanna, en það getur aftur orðið til að láta þau ná betri árangri.
Þetta eru þær brtt., sem búnaðarþing óskar, að nái fram að ganga, og búfjárræktarnefnd þess stóð að þeim einhuga. Þar sem búnaðarþingið er skipað 25 kjörnum fulltrúum bænda, er vitað, að það fer ekki fram á annað en það, sem horfir til virkilegra bóta. Kostnaður er óverulegur. Ég vildi því mælast til, að hv. þdm. létu þetta fara óbreytt og liðlega gegnum deildina.