27.03.1939
Efri deild: 25. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í B-deild Alþingistíðinda. (468)
53. mál, síldartunnur
*Flm. (Erlendur Þorsteinsson) :
Ég ætla aðeins með örfáum orðum að fylgja frv. úr hlaði. — Eins og grg. frv. her með sér, þá er það flutt að beiðni síldarútvegsnefndar. Það hafa komið fram á síðari árum ýmsar kvartanir út af því, að umbúnaður um síldina væri ekki svo vel úr garði gerður sem ætti að vera. Sérstaklega hefir þetta komið fram nú upp á síðkastið. Síldarverkun allri hefir farið fram, og það er viðurkennt í markaðslöndunum, að handbragð allt á síldinni og öll verkun hennar hefir farið batnandi, en það er einn galli aðallega, sem orðið hefir vart við, og er hann að kenna því, að umbúnaður vörunnar hefir ekki verið svo góður sem skyldi. Það má geta þess, að keppinautar okkar, bæði Norðmenn og Skotar, hafa komið á löggjöf hjá sér um þetta efni og séð nauðsynina á því að vanda til umbúnaðarins ekki síður en til verkunarinnar yfirleitt. Það er einnig önnur ástæða. sem gerir það að verkum, að brýn þörf er á því, að eitthvað sé gert í þessu máli, en hún er sú, að á síðari árum — sérstaklega eftir að einkasalan hætti að starfa — hefir tunnuinnflutningur komizt í hendur allmargra manna. Það hafa oft verið fluttar inn hinar ólíkustu tegundir af tunnum, og stærðin hefir numið frá 113 lítrum upp í 122 lítra. En samkv. frv. er gert ráð fyrir, að síldartunnur rúmi 118–120 lítra og að ákveðið magn af síld komi úr hverri tunnu. Það er ekki sama síldarmagn í tunnu, sem rúmar 113 lítra, og tunnu, sem rúmar 122 lítra. Það hlýtur því að valda óánægju hjá kaupanda, ef hann er svo óheppinn að fá mikið af tunnum, sem rúma aðeins 113 lítra. Honum getur þá dottið í hug, að þar séu brögð í tafli af hálfu saltenda, og vilji hann láta sem minnst magn síldar fyrir sama verð. En því er ekki til að dreifa, heldur kemur þetta vegna þess, að tunnurnar eru miklu minni en gert er ráð fyrir. Nokkrir saltendur hafa orðið fyrir allverulegum skaðabótakröfum af hendi kaupenda vegna þess, að þeir hafa ekki skilað tilskildu magni af síld. Það má geta þess, að þegar síldarútvegsnefnd ákveður lágmarksverð á síld, þá er um leið ákveðinn kílóafjöldi í hverja tunnu, og vitanlega vill kaupandi halda sig við þann kílóafjölda. Ef sá kílóafjöldi er ekki í hverri tunnu, þá verður að taka úr öðrum tunnum til [tess að bæta upp þær tunnur, sem ekki ná hinum ákveðna kílóafjölda. Þetta er gert á kostnað saltenda, því síldin er keypt samkv. tunnutölu.
Það veitir því ekki af að gera þetta fast, þannig, að ákveðið magn rúmist í hverri tunnu.
Ég vil svo mælast til, að frv. verði vísað til sjútvn. og afgr. svo fljótt sem unnt er, þar sem gert er ráð fyrir, að ákvæðið um stærð tunna geti komið til framkvæmda á þessu ári.