17.04.1939
Neðri deild: 41. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í B-deild Alþingistíðinda. (478)
53. mál, síldartunnur
*Frsm. (Finnur Jónsson) :
Þetta frv. hefir komið hingað frá hv. Ed. Sjútvn. hefir haft málið til athugunar og leggur einróma til, að frv. sé samþ. óbreytt, þar sem þetta getur haft mjög mikla þýðingu fyrir okkar síldarframleiðslu.
Ég þarf ekki að leiða rök að því, að það er öllum vitanlegt, sem þessa atvinnugrein stunda eða eitthvað til þekkja, að það má ekki lengur svo til ganga, að engin ákvæði séu til um það, hvernig eða hverskonar efni er í umbúðum þeim, sem hafðar eru utan um síldina. Að engin regla er til um þetta, hefir orðið þess valdandi, að hvað eftir annað hafa komið fram kvartanir um undirvigt á síld, vegna þess að umbúðir þær, sem notaðar hafa verið og eru að mestu leyti fluttar frá öðrum löndum, eru þannig úr garði gerðar, að þær eru ekki lagarheldar.