17.04.1939
Efri deild: 41. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í B-deild Alþingistíðinda. (534)
42. mál, útsvör
*Sigurjón Á. Ólafsson:
Ég þarf ekki að taka það fram, að sjónarmið n. miðast ekki við neinn einn stað á landinu. En mér virðist sem einn staður hafi blandazt óþarflega mikið inn í þessar umr. Það er rétt eins og enginn annar en hann hefði hagsmuna að gæta í þessu máli. En einmitt í sambandi við Siglufjörð hefði ég gjarnan viljað óska upplýsinga frá þeim, sem þar þekkja vel til. Það má e. t. v. segja, að n. hafi láðst að afla þeirra upplýsinga. Ég vildi gjarnan spyrja um það, hvort Siglufjarðarkaupstaður muni hafa fengið dæmdan úrskurð fyrir því, hvort ekki sé hægt að leggja á söltunarstöðvarnar. Ég er náttúrlega ekki sá rétti maður til að útskýra l., en mér skilst, að það liggi opið fyrir hjá þessu bæjarfélagi að láta dómstólana skera úr um breyt. 1926.
En svo er það annað atriði í þessu sambandi. Til Siglufjarðar kemur árlega um síldveiðitímann fjöldi af lausakaupmönnum, sem raka þar saman peningum, en, eftir því sem ég bezt veit, ekki er lögð á ein einasta króna í útsvar. Við lítum svo á í n., að það séu í l. tvímælalaust ákvæði sem heimili að leggja á slíka lausamenn. Ég vil í því sambandi vitna í lögfræðinginn í n. Hér er merkilegt atriði í útsvarslögunum, sem nauðsynlegt er að fá úrskurðað um með dómi. Hinsvegar verð ég að líta svo á, að það sé hæpið að fara að gera þessar smáfleytur útsvarsskyldar, þar sem það er vitað, að það er oft og tíðum hrein tilviljun, hvar þær lenda. Mér finnst, að með því yrði ósamræmi milli þeirra manna, sem eru skráðir útgerðarmenn, og hinna, sem vinna á fleytunum, því að það er oft ekki nema nafnið tómt, að þessir menn séu skipaeigendur.
Ég skal ekki fara að endurtaka það, sem hv. frsm. hefir tekið fram, en hann hefir sýnt fram á, hvernig þetta kemur niður í fátækum útgerðarplássum.
Ég er alveg sammála hv. 1. þm. Eyf. um það, að það sé full nauðsyn að taka til athugunar útsvarslögin í heild. Ég myndi greiða atkv. þeirri till., sem hann kynni að bera fram um það, að fela ríkisstj. athugun á þessu máli.