21.04.1939
Efri deild: 45. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í B-deild Alþingistíðinda. (544)
42. mál, útsvör
Páll Zóphóníasson:
Ég vil styðja mjög að því, að málið verði tekið af dagskrá. Í Nd. er nú á ferðinni önnur breyt. á þessum sömu lögum og altalað, að henni sé ætlað að fá afgreiðslu fyrir þingfrestun. Það er ekki vansalaust fyrir Alþingi að afgreiða tvennar breytingar á sömu lögum á sama þinginu. Frestun umr. ætti að nota til að sameina málin bæði í eitt.