17.04.1939
Neðri deild: 41. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í B-deild Alþingistíðinda. (566)
75. mál, ríkisborgararéttur
*Frsm. (Bergur Jónsson):
Allshn. hefir borið fram brtt. við frv. um að orða frvgr. á ný, og hefir hún gert það til þess að bæta við einum manni í tölu þeirra. sem eiga að fá ríkisborgararétt. Hann er Íslendingur og er nr. 2, Vilhjálmur Hans Alfred Schröder að nafni. Hann fullnægir skilyrðum viðkomandi l. til þess að geta fengið íslenzkan ríkisborgararétt.