25.04.1939
Efri deild: 50. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í B-deild Alþingistíðinda. (588)

75. mál, ríkisborgararéttur

*Frsm. (Ingvar Pálmason):

Þetta frv. er komið aftur frá Nd., og hefir það tekið þar þeirri breyt. að bætt hefir verið við einum umsækjanda. Það stóð þannig á með þann umsækjanda, þegar málið var til meðferðar í þessari d., að hann vantaði hegningarvottorð til þess að fullnægja skilyrðum l. Nú hafa þessi hegningarvottorð verið lögð fram og þessu skilyrði því verið fullnægt.

Ég geri ráð fyrir, að allshn., þótt það hafi ekki verið borið undir hana, sé með því að samþ. frv. eins og það liggur hér fyrir, því ástæðan til þess, að þessi maður var ekki tekinn upp, var engin önnur en sú, sem ég hefi þegar greint.