22.04.1939
Neðri deild: 46. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í B-deild Alþingistíðinda. (675)

83. mál, mæðiveikin

Skúli Guðmundsson:

Þessi lög, sem hér er lagt til, að gerðar verði nokkrar breyt. á, eru í þremur köflum. Fyrsti kuflinn er um varnir gegn útbreiðslu mæðiveikinnar, og 3 fyrstu gr. af 6 gr. þessa frv., sem hv. landbn. hefir borið fram á þskj. 175, fjalla um breyt. á þessum 1. kafla. Við það hefi ég ekkert að athuga.

4. og 5. gr. frv. fjalla aftur á móti um breyt. á 2. kafla 1. sem er um stuðning til bænda, sem tjón hafa beðið af völdum mæðiveikinnar, og sú brtt., sem ég hefi leyft mér að bera fram, er við 5. gr. þessa frv. á þskj. 175. Ég hefi í brtt. skrifað upp alla gr., eins og ég ætlast til, að hún verði, þ. e. a. s. 22. gr. í l., ef þessi breyt. mín verður samþ.

Í 1. eins og þau eru nú er svo fyrir mælt, að framkvæmdan. skuli skipta því fé, sem fjárl. heimila til stuðnings bændum, í hlutfalli við þann tekjumissi, sem þeir hafa orðið fyrir af völdum veikinnar. Þetta var þannig framkvæmt á síðastl. ári. Ég tel, að komið hafi í ljós, að það væri ekki aðeins æskilegt, heldur réttmætt, að þarna væri tekið tillit ekki aðeins til þess tekjumissis, sem bændur hafa orðið fyrir af völdum veikinnar, heldur væri styrkur þeirra nokkuð mismunandi eftir því, hvernig ástæður þeirra væru að öðru leyti. Og sú brtt., sem ég hefi borið hér fram, gengur í þessa átt. Í till. minni er gert ráð fyrir því, að auk þess sem styrknum verði skipt eftir tekjumissi bænda, verði einnig við úthlutun á þessu fé höfð hliðsjón af ástæðum og afkomumöguleikum þeirra, sérstaklega með tilliti til framfærsluþunga, þannig að þeir, sem hafa mikla ómegð, fái aukinn styrk, en aftur verði dregið úr styrk eða hann jafnvel niður felldur til þeirra, sem telja má, að vel geti komizt af án þess að fá styrk.

Í umr. um þetta mál hafa komið fram tvennskonar sjónarmið. Ýmsir hafa haldið því fram, að þetta ætti ekki að vera sem framfærslustyrkur eða hliðstætt honum, heldur eingöngu bætur fyrir tjón, sem menn hefðu orðið fyrir. Og ég skal viðurkenna. að þeir, sem leggja á þetta áherzlu, hafa allmikið til síns máls, því vitanlegt er það, að vegna þess tjóns, sem menn hafa almennt urðið fyrir í sumum sýslum af völdum mæðiveikinnar, hvíla nú hlutfallslega þyngri byrðar á mönnum heldur en áður, miðað við greiðslugetu, t. d. til sveitarsjóðs, og koma þá útgjöldin vitanlega harðar niður á þeim, sem betur mega, en áður. En þrátt fyrir þetta tel ég réttmætt og eðlilegt, að við úthlutun styrktarfjárins sé tekið tillit til þess. hvernig ástæður manna eru að öðru leyti. Þessi styrkur er ill nauðsyn. og við skulum vænta þess, að sem fyrst takist að koma aftur upp bústofni í þeim héruðum, þar sem hann hefir hrunið niður, þannig að styrkveitingar í þessu formi geti verið úr sögunni. En meðan mönnum hefir ekki tekizt að konur upp bústofni og skapa á þann hátt lífvænlega atvinnu í þessum sveitum, er óhjákvæmilegt að halda uppi þessum styrkveitingum, til þess að bændur þurfi ekki að hrökklast frá jörðum sínum og flýja sveitirnar. Og þótt það sé vitanlega sjálfsagt að koma í veg fyrir það, eftir því sem mögulegt er, að bændur þurfi að flytja úr sveitunum á meðan þetta ástand varir, og það eigi við um alla bændur, fel ég, að þess sé þó einna mest þörf, að búa svo að þeim bændum, sem hafa mörg börn á framfæri sínu, að þeir geti haldizt við í sveitunum eins og áður. En það liggur í augum uppi, að tekjurýrnun af völdum mæðiveikinnar kemur hlutfallslega þyngra niður á þeim bændum, sem hafa marga á framfæri sínu, heldur en hinum, sem hafa betri ástæður hvað það snertir.

Þetta frv. á þskj. 175 frá hv. landbn. kom fyrst fram hér í d. í gær. Þess vegna gafst mér ekki tími til þess að ræða við hv. n. um þessar breyt., sem ég vil, að hér verði samþ. En þar sem n. hefir ekki haft tækifæri til þess að athuga þetta sérstaklega, vil ég taka þessa brtt. mína aftur nú við 2. umr. málsins, en mælist til þess við hv. landbn., að hún taki till. til athugunar fyrir 3. umr.