08.11.1939
Neðri deild: 55. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í B-deild Alþingistíðinda. (788)
98. mál, verkamannabústaðir
*Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Ég þarf ekki að svara hv. 3. þm. Reykv. með löngu máli. þótt ræða hv. þm. væri mjög löng. Það var margt þess eðlis, að það er ekki svaravert, og fjarri því, að hv. þm. kæmi með rökstuðning fyrir þeim málstað, sem hann vildi halda fram.
Ég ætla ekki að fara að karpa við hv. 3. þm. Reykv. út af því, að ég fór í ríkisstj. Hv. þm. kemur það á engan hátt við og hefir ekkert um það að segja.
En hv. 3, þm. Reykv. situr hér á Alþingi, kosinn af flokki, sem hann hefir svikið — hv. þm. situr á atkv. þeirra manna. sem hann hefir reynt að ofsækja á allar lundir, bæði innan þings og utan. (HV: Hvar eru Alþfl.-kjósendur núna?). Ég geri ráð fyrir, að Alþfl.-kjósendur komi í ljós á sínum tíma. En hvar verða kjósendur Sameiningarfl.? Það verður fróðlegt að vita, hvernig sameiningin verður þar. Hv. 3. þm. Reykv. las langa sögu um Byggingarfélag alþýðu í Reykjavík. Ég ætla, að þeir, sem hafa hlustað á þá sögu, geti sannfærzt um, að þetta félag reyndi að halda áfram byggingarstarfsemi sinni í Reykjavík, en það reyndist ókleift vegna hins venjulega ofsa í hv. 3. þm. Reykv., sem allt vildi undir sig leggja í félaginu og engum reglum hlíta, og vildi setja ríkisstj. reglur, en ekki hlíta þeim reglum, sem félaginu voru settar. Það var þrautreynt, að þetta félag hefði byggingarstarfsemi með höndum, en það tókst ekki. Þá var stofnað nýtt félag með fjölda þeirra sömu manna, sem voru áður í Byggingarfélagi alþýðu. Í þessu félagi er, að ég hygg, á fjórða hundrað manns. Það starfar af miklu kappi, og allar framkvæmdir þess eru, að mínu viti, skynsamlegar og fyrirhyggjumiklar.
Ég ætla ekki að eyða orðum um frásögu hv. 3. þm. Reykv. um fundinn í Byggingarfélagi alþýðu 13. júní s. l., en sá fundur var aðallega boðaður til pólitískra æsinga, enda var þá samþ. ávarp, sem var fullt af botnlausum skömmum um mig og Alþfl. Og fundurinn var hreinn skrípaleikur, þegar að því kom, að ætti að fylgja fyrirmælum l. um verkamannabústaði. Ég gaf yfirlýsingar á fundinum, að viss skilyrði og ákvæði, sem borin voru þar fram á fundinum, yrðu ekki til greina tekin. En samt var haldið áfram á fundinum, og þegar átti að kjósa á ólögmætan hátt, þá gengu margir af fundi. (HV: 10). Ég held, að hv. 3. þm. Reykv. gæti fengið óteljandi vottorð frá hv. 5. þm. Reykv. og Þjóðviljanum, hvernig hann fer með tölur þegar því er að skipta. Hv. 3. þm. Reykv. var að finna að starfsemi byggingarfélagsins og sagði, að teknir hefðu verið 70 menn og valdir til þess að gerast þátttakendur í byggingum byggingarfélagsins.
Þetta eru ósannindi. Því að það var farið með skrána til lögmanns, og hann var látinn draga röð af mönnum, sem eiga rétt til þess að fá hús um leið og þau verða byggð. Það er áreiðanlegt, að þar hefir engin hlutdrægni komizt að.
Hv. 3. þm. Reykv. var að gera gys að því, að staðurinn fyrir nýju verkmannabústaðina væri ekki mikið skemmtilegri heldur en staðurinn, sem hann var svo lítilþægur að þiggja fyrir hönd verkamanna á meðan hann fór með völd í félaginu. Ég hefi gert samanburð á þessum stöðum og hefi haft til aðstoðar sérfróða menn, og skal ég lesa hér upp, með leyfi hæstv. forseta, þann samanburð:
Sérfræðingur í byggingar- og skipulagsmálum hefir gert eftirfarandi samanburð á verkamannabústöðum, byggðum í Norðurmýri og þeim stað, þar sem verkamannabústaðirnir eru byggðir nú.
Á síðastl. vetri hafði bæjarverkfræðingur veitt lóðir undir þrílyfta verkamannabústaði, sambyggða, og var þeim ætlaður staður í norðurhluta Norðurmýrar, milli Rauðarárstigs og Hringbrautar, Grettisgötu og Nálsgötu.
Á síðastl. sumri var þessu breytt þannig, að verkamannabústöðunum var valinn staður í Rauðarárholti ofarlega við Háteigsveg, á einkarfögrum og haganlegum stað.
Fer hér á eftir nokkur samanburður á ofangreindum 2 stöðum og byggingum þeim, sem ætlaðar voru í Norðurmýri, og þeim, sem nú verða reistar í Rauðarárholti.
1. Norðurmýri:
Norðurmýri liggur í hálfgerðri kvos við jaðar Rauðarárholtsins. Byggðin, sem risið hefir þar upp á síðari árum, er ein þéttasta byggð í bænum og sízt til fyrirmyndar, einkum er norðar dregur. Við sunnanverða Grettisgötu er núverandi byggð lokað með tveggja hæða sambyggingum gegn norðri.
Norðanvert við sömu götu var hinum fyrirhuguðu verkamannabústöðum ætlaður staður, í þrílyftum sambyggingum á norður-, austur- og vesturlóðamörkum að Njálsgötu, Hringbraut og Rauðarárstig.
Byggingareiturinn var aðeins fáanlegur 25 m. breiður með því að húsin stæðu í götumörkum við Njálsgötuna, en sunnan til í reitnum var 1800 fermetra barnaleikvöllur, sem ætlaður var börnum úr miklum hluta Norðurmýrar.
Í hverju einstöku húsi voru áætlaðar 6 íbúðir, og land, sem fylgt hefði öllum 6 íbúðunum, hefði ekki farið langt fram úr l50 fermetrum samtals, eða 25 fermetrum á íbúð, og bar að skoða slíkt land sem litla forgarða með hinum háu húsum, en ekki sem land til afnota fyrir íbúa húsanna.
Barnaleikvöllurinn inni á miðju svæðinu átti að bæta úr plássleysi þessu, sem athvarf fyrir börnin, en sá hinn sami leikvöllur var ætlaður fyrir aðra byggð og hefði auk þess orðið til muna of lítill fyrir þau rúmlega 300 börn, sem ætla mátti, að kæmu til viðbótar úr hinum nýju verkamannabústöðum.
Um staðsetningu húsanna sjálfra var það að segja, að þau stóðu með þremur fjölförnum umferðargötum í lægð neðan við iðnaðarhverfi, og er líklegt, að grundvöllurinn undir byggingar á þessum stað sé engu betri en sunnar í mýrinni, eða með öðrum orðum hálfgert fen, þar sem þyrfti að vanda mjög til verksins með undirstöður jafnmikilla og hárra bygginga og hér var gert ráð fyrir, ef öruggt átti að vera um vatnsaga neðan frá.
Því hefir verið haldið fram, að ódýrara væri að byggja sambyggt með fleiri hæðum, t. d. þremur í stað tveggja, eins og hér um ræðir. Kostnaðarmunurinn er að vísu nokkur, en þó ekki nema því sem munar auknum frágangi á göflum húsanna og að stigahúsum fjölgaði eitthvað um leið og húsin eru aðgreind.
2. Rauðarárholtið:
Staður sá í Rauðarárholti, sem nú hefir verið valinn undir verkamannabústaði, og þar sem þegar er farið að byggja fyrstu húsin, er einkar vel settur, með fagurri útsýn og liggur vel við áttum. Húsin, sem þar eru byggð, eru einstæð, en með 4 fjölskyldum í hverju þeirra. Áætlaður kostnaður er 60000 kr. á hús., eða 15000 kr. á hverja íbúð. Mun erfitt að koma upp húsum þeirrar stærðar fyrir minna verð nú á tímum dýrtíðar í öllum byggingarefnum.
Á hvert hús fellur lóð, sem er 613 fermetrar að stærð, eða um 154 fermetrar á íbúð, og auk þess sameiginlegur barnaleikvöllur í miðju hverfinu, sem er að stærð 2500 fermetrar. Mun það vera einn stærsti barnaleikvöllur þessa bæjar.
Á hverja einstaka íbúð falla um 128 ferm. lóðar og er þar frádregið það, sem hússtæðinu sjálfu er ætlað.
Alls verða þarna 4l hús, eða 164 fjölskyldur. Staður þessi liggur ofarlega við Háteigsveg, en ráðgert er, að hitaveitulögn komi í Rauðarárstíg, og til þess að sjá verkamannahverfinu fyrir hita frá hitaveitunni, þyrfti aðeins 150–200 metra leiðslu frá vegamótum þessara tveggja gatna, sem líklegt er, að næði fram að ganga um leið og hitaveitunni fyrir innbæinn væri fulllokið.
Lega hverfisins og afstaða til innbæjarins er hin ákjósanlegasta, þar sem fyrirhuguð aðalbraut frá torgi við gatnamót Laugavegar og Hverfisgötu liggur beint að hverfinu og sameinast þar Háteigsveg.“
Ég ætla, að það sé ekki vafi, að hinn nýi staður beri mjög mikið af þeim gamla stað fyrir verkamannabústaðina, sem hv. 3. þm. Reykv. taldi sæmilegan.
Hv. 3. þm. Reykv. sagði, að þessar byggingar yrðu dýrar. Það er augljóst mál, að þær verða dýrari en undanfarin ár. En þess ber þó að gæta, að byggingarfélagið hefir haft framsýni um að afla sér byggingarefnis, sem að litlu leyti er komin fram á stríðsáætlun. En allt byggingarefni, sem hér eftir verður flutt inn til landsins, verður miklum mun dýrara. Og ég er viss um, að þótt Byggingarfélag alþýðu hefði farið með byggingarmálin, þá hefðu ekki verið reist hús fyrir lægra verð heldur en þessi áætlun gerir ráð fyrir.***
Ég efast ekki um verzlunarþekkingu hv. 3. þm. Reykv. Ég veit, að hann hefir þekkingu til að græða á fyrirtækjum, er hann stjórnar, að hann hefir einurð til að setja slíkt verð á nauðsynjar, er hann selur, að hann hljóti góðan gróða.
Þá sagði hv. þm., að það yrðu ekki verkamenn, sem nytu góðs af þessum nýju íbúðum. En það eru nú einmitt verkamenn, sem hafa fest kaup á íbúðunum, verkamenn, sjómenn. iðnaðarmenn, innheimtumenn, tollþjónar, nokkrir skrifstofumenn o. s. frv.
Hv. 3. þm. Reykv. sagði, að brbl. hafi verið sett til að hnekkja starfsemi Byggingarfélags alþýðu. En þau voru sett til að bæta skipulag félagsskaparins, og yfirleitt félaga, sem hafa á höndum að reisa verkamannabústaði. Það er meiri trygging fyrir því, að félög þessi séu vel rekin, ef maður stendur fyrir þeim, sem valinn er af ríkisstj. á hverjum tíma. Þó að hv. þm. sé reiður af því að hann getur ekki framar orðið formaður byggingarfélagsins, er ekki ástæða til að andvarpa sérstaklega út af því. Andstaða hans gegn brbl. var sprottin af því, að hann vissi, að engum félagsmálaráðh. myndi nokkurn tíma detta í hug að skipa hann sem formann nokkurs byggingarfélags.
Ég vænti þess svo, að frv. fari gegnum hv. d. á eðlilegan hátt, þó að hv. n. gæti athugað, hvort þörf væri frekari breytinga á l.