08.11.1939
Neðri deild: 55. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í B-deild Alþingistíðinda. (790)

98. mál, verkamannabústaðir

*Héðinn Valdimarsson:

Það fór svo sem við var að búast, að hæstv. félmrh. gæti ekki svarað þeim rökum, sem ég lagði fram, enda er málið þannig vaxið, að ekki er hægt að verja það, þar sem hér er maður að misbeita valdi sínu til hefndar á pólitískum andstæðingum. Viðvíkjandi athugasemdum hæstv. ráðh. vil ég segja nokkur orð.

Forsendur hans fyrir brbl. eru þær, sem oft hefir verið haldið fram af blöðum íhaldsins, að verkamannabústaðirnir nytu mikils styrks af bæjum og ríki. Áður fyrr, meðan hæstv. ráðh. var í Alþfl., sem þá var, stóð hann alltaf upp og andmælti þessari staðhæfingu, þegar hún var borin fram hér á þingi, en nú gerir hann hana að aðalforsendu sinni. Enda er auðvelt að hrekja þetta. Það er að vísu satt, að það eru ekki litlar fjárhæðir, sem hið opinbera veitir til byggingarstarfsemi, en þetta er þó aðeins gert á þann hátt, að fé er lagt til hliðar í sjóð, sem er opinber eign eftir sem áður. Þetta er aðeins lánsfé, sem er greitt aftur með vöxtum. Þannig hefir þetta verið til þessa, en á því kann að verða breyting, ef taka á stöðugt dýrari lán til þessarar starfsemi. Sá styrkur, sem hægt er að segja, að lagður sé til verkamannabústaðanna. er í hæsta lagi teikningar og eftirlit, sem er þó eins mikið í þágu ríkisins sjálfs, til tryggingar því, að allt fari vel úr hendi. Þessar forsendur eru því í rauninni alveg rangar.

Ég skil vel, að hæstv. félmrh. kalli fundi í Byggingarfélagi alþýðu skrípaleiki, þegar félagsmenn ræða mál sín, ef skoðanir þeirra ganga eitthvað á móti skoðunum hæstv. ráðh. Hæstv. ráðh. sagði, að ég hefði haft þetta svona og svona eftir mínu höfði og hagað framkvæmdunum eftir því, sem bezt hefði hentað mér á hverjum tíma. En þetta er ekki rétt. Ég fór jafnan eftir vilja fólksins, eins og vera ber. Það, sem hæstv. ráðh. gremst hvað mest, er útreið sú, sem hann fékk á fundinum í sumar, þegar hann ætlaði að rýma fundinn með því að ganga af honum, en fékk aðeins l0 sálir með sér, þrátt fyrir það, að fundarmenn skiptu hundruðum.

Viðvíkjandi kommúnistahræðslunni. sem svo mjög virðist hafa gripið ráðh., vil ég segja það eitt, að ég hygg, að fáir hafi verið félagar í Byggingarfélagi alþýðu, sem voru í Kommfl.

Þá var hann að reyna að sýna fram á, að þessir nýju verkamannabústaðir, sem nú er verið að byrja á, yrðu að öllu leyti miklu betri en þeir gömlu, og jafnframt betur settir. Þessu til sönnunar las hann upp skjal mikið, er hann sagði, að væri frá málsmetandi mönnum, sem hann þó aldrei nefndi á nafn. Skjalið skyldi þó ekki vera frá Guðjóni Samúelssyni? Það var ekki haft svo mikið við stað þann, er búið var að velja undir þessa verkamannabústaði, að grundvöllurinn væri athugaður, hvað þá meira. Það er aldrei nema satt, að lóðir þær, sem nú á að fara að byggja á, eru stærri en hinar, sem fyrirhugaðar voru, en þess ber þá jafnframt að gæta, að þær eru dýrari fyrir fólkið, auk þess sem þær liggja mun lengra frá aðalvinnustöðvum bæjarins, eða sem næst 8–10 mín. gang. Af því, sem ég þegar hefi tekið fram, staðhæfi ég, að allar ráðstafanir hæstv. félmrh. í þessum málum eru til hins verra, og að stjórn sú, sem stýrir framkvæmdum hins nýja félags, er alls ekki starfi sínu vaxin. Hún kaupir t. d. byggingarefnið allt of dýru verði, og væri fróðlegt að fá upplýst, hvar efnið væri keypt, svo hægt væri m. a. að bera það saman við innkaupin á efninu til hitaveitunnar.

Þá hrópaði hæstv. ráðh. upp með það, að ég hefði svikið Alþfl. En það vill nú svo vel til, að til er bók, sem heitir stefnuskrá Alþfl., og sé hún athuguð, þá má fljótt fá sannanir fyrir því, að fáir hafa vikið flokkinn meira en þessi hæstv. ráðh. og þeir, sem honum fylgja að málum.

Annars er eins og hæstv. ráðh. sé töluvert sárt um að upplýsa, hvernig hann komst í þennan valdasess, — hann, sem er utanþingsmaður. Mér finnst hér ekki um neitt einkamál að ræða. og því sé sjálfsagt að snúa sér að ráðherranum og ræða við hann þau mál, sem undir hann heyra og hann hefir verið að skipta sér af.