27.11.1939
Neðri deild: 69. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í B-deild Alþingistíðinda. (811)

98. mál, verkamannabústaðir

*Pétur Halldórsson:

Herra forseti! Hæstv. félmrh. hlaut að vera við því búinn, að einhverjir þeirra, sem muna 6–8 ár aftur í tímann. segðu eitthvað svipað því, Sem ég sagði, að ekki yrði setið svo á „íhaldinu“, að ekki yrði sagt eitthvað í þessa átt.

Þó vona ég, að ég hafi ekki sagt það svo óþægilega, að hann hafi réttmæta ástæðu til þess að segja aðra eins fjarstæðu sem þá, að vegna þess að ég er borgarstjóri í Reykjavík, svíði mér það sárt að sjá myndarlegar byggingar í bænum. Svona tal nær ekki nokkurri átt, og það vita þessir piltar sjálfir. Það, sem mér svíður, er það, að Alþ. eða meiri hl. þáverandi stjórnarflokka skyldu ganga inn á það að gefa pólitískum flokki það vald, sem hér er um að ræða. Það er ljótt að hælast um, og ég vil ekki gera það. Það er skylda að benda löggjafarþinginu á, að víða er það svo, að þegar svona verk eru framin, verður það ekki til góðs, heldur til ógagns, er kemur fram á einhvern hátt. Þarna kemur ógagnið fram á þann hátt, að það verður til óviðunandi meðferðar á þessu máli, sem átti að nota til sameiginlegra pólitískra hagsmuna fyrir þá flokka, sem hafa nú ekki borið gæfu til að vinna saman lengur. Annað, sem mér þykir líka sárt, er það, að þessir forgöngumenn hinna fátæku og alþýðunnar eru enn með það á vörunum, að þetta sé fyrir þá fátæku. En mér er kunnugt um, að það er alls ekki fyrir þá fátæku, og ekki heldur ætlað þeim. Til þess að geta búið í þessum verkamannabústöðum þarf sæmilegar tekjur, og er það allt annað en forgöngumenn verkamannabústaðanna hafa látið í veðri vaka. Þeir eru ætlaðir þeim flokki manna, sem hefir sæmilega afkomu og eru flokksbræður jafnaðarmanna og pólitískir, en þeir jafnaðarmenn eru ekki meðal hinna fátæku, og er þess gætt.

Ég held líka, að það væri íhugunarmál fyrir hæstv. félmrh., úr því að hann hefir sérstaklega komið auga á þetta atriði, að athuga, hvort þeir, sem búa í verkamannabústöðunum, uppfylltu þau skilyrði, sem hafa verið sett, að þeir hefðu ekki hærri árstekjur en 4000–5000 kr. Það er grunur minn, að meiri hl. þeirra manna, er þar búa, hafi talsvert meiri tekjur, og málið horfi þannig við, að því lengra sem liður þurfi af ýmsum ástæðum að hækka meira tekjuliði þeirra, sem í húsunum búa, til þess að l. nái tilgangi sínum. Þegar foringjar Alþfl. segjast vera að vinna fyrir hina fátæku, eru þeir að vinna fyrir þann fasta stofn af flokksmönnum sósíalista, sem eru sæmilega efnaðir, og þeir munu flestir hafa meira en 4000–5000 kr. árstekjur.

Hæstv. félmrh. sagði, að enginn skyldi hlakka yfir því, hvað verkamannabústaðina snerti, að ekki fái aðrir en pólitískir jábræður sósíalista að njóta þeirra. Margt mætti segja um það, hvernig farið er að nota þá 2000 menn, sem eru í byggingarfélaginu, sem vilja gjarnan fá íbúð og trúa því, að ef þeir fá hana, geti þeir haldið henni, þó það sé umfram þeirra efni. Það er með tvennu móti, að því er mér er sagt. Hið nýja félag hefir farið þá leið, að safna áskriftum á lista, og þeir, sem fyrstir skrifa sig á lista, fá fyrst íbúð. Það er vandalaust að láta þá, sem hafa rétta pólitíska skoðun, skrifa sig fyrst á lista, þegar stofnun félagsins er undirbúin í kyrrþey. Önnur leið til að velja þá úr, sem fyrstir eiga að fá íbúðir, er að hafa happdrætti um það, og er hér um stórkostlegt happdrætti að ræða fyrir þá, sem hafa hæfilegar tekjur. En mér þykir þessi happdrættisaðferð enn djöfullegri en hin, ef ég má svo að orði komast, því að hún verkar á þann hátt, að forráðamenn félagsins safna eins mörgum í það og þeir geta, því að þegar þessi aðferð er höfð, hefir enginn meiri líkur til að fá íbúð en annar, og enginn veit, hver fær íbúð næst, hvort það verður heldur Alþfl.-maður, framsóknarmaður, sjálfstæðismaður, kommúnisti eða nasisti. Þá er fyrst hægt að „agitera“ flokknum í hag með því að halda því fram, að málið nái til allra, sem hafa ástæður til að vinna í slíku happdrætti. Með þessum stórkostlega bardaga fyrir heill almennings, eins og þetta er kallað, sem er í rauninni sérréttindi fárra manna, er fjöldi manna látinn borga skatta,. til þess að gefa nokkrum mönnum, sem valdir eru af sósíalistum, ákveðin sérréttindi.

Nei, því fer fjarri, að mig svíði undan því, þótt hér í Reykjavík rísi upp myndarlegar byggingar. Ef einhver kennir til sviða undan því, þá hefir hann ekki tekið það atriði, sem alveg var óþarfi að finna til út af.

Ég vil að lokum segja það, að ég hefi ekki heyrt, að yfirleitt hafi verið fundið að stj. hv. 3. þm. Reykv. á Byggingarfélagi alþýðu hvað snertir vinnubrögð við að koma upp húsnæði. Mér er sagt, að hann hafi gert það vel og svo, að ekki hafi þótt aðfinnsluvert. Ég hefi ekki heyrt fundið að stj. hans, nema af pólitískum leiðtogum, sem eru andstæðingar hans.

Það getur valdið deilum, hvort byggja skuli samstæð hús eða sérstök, en ég hefi ekki heyrt, að stj. á Byggingarfélagi alþýðu hafi lent í ráðleysi, og ekki hafi verið farið eftir því, sem telja má sanngjarnar kröfur, heldur hafi hv. 3. þm. Reykv. haldið vel á því „praktiska“ fyrir þá, sem eiga að búa í húsunum. Ég hefi ekki ástæðu til að draga taum nokkurs þess manns, sem verið hefir formaður Byggingarfélagsins.

Það er nú ljóst, að hér er um pólitískt mál að ræða, sem byrjaði með því óhappaspori, er stigið var þegar meiri hl. Alþ. fór inn á þá braut árið 1931, að Framsfl. gæfi sósíalistum þetta vald yfir fólkinu í kaupstöðum landsins, gegn því að Framsfl. hefði samskonar fríðindi í sveitunum. Þetta er ljótt, og þeir eru nokkrir, sem hafa fengið að kenna á því, að illur fengur illa forgengur.