27.11.1939
Neðri deild: 69. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í B-deild Alþingistíðinda. (816)
98. mál, verkamannabústaðir
*Einar Olgeirsson:
Hæstv. félmrh. sagði ennþá, að Byggingarfélag alþýðu hefði sett skilyrði. Þó eru réttar 5 mín. síðan þetta var rekið ofan í hann. Ég legg það undir álit hv. þingdeildar, hvort það sé skilyrði, þó byggingarfélagið hafi sett nokkur ákvæði í l.
Þessi nýju ákvæði falla úr gildi, í fyrsta lagi, svo framarlega sem ráðherra viðurkennir þau ekki, í öðru lagi, ef byggingarfélagið fær ekki nokkur lán úr byggingarsjóði, í 3. lagi ef Alþ. felldi þessi bráðabl., en byggingarfélögin halda þessum áfram, þó að þingið felldi lögin.
Hæstv. félmrh. reyndi að breiða yfir það, að hann heimtaði að fá formann settan í stjórnina, þó að það sé óvinsælt af félögunum. Hæstv. félmrh. var að lýsa hv. 4. þm. Reykv. á mjög kritiskan hátt, en hitti sjálfan sig fyrir, eins og hann er nú. Hann sér ofsjónum yfir verkamannabústöðunum. Þessi hæstv. félmrh. setti í sumar sérstök bráðabl., sem ég álít óþörf. Á endanum var byggður helmingur verkamannabústaðanna, og hann varð mjög dýr. Þessi sami hæstv. félmrh. reynir svo að grípa í hálmstrá og gefur út bráðabirgðal. Viðvíkjandi því, sem hv. 7. landsk. sagði, að honum fyndist ekki rétt að fella bráðabirgðal. frá sjónarmiði þingsins, gæti verið nauðsynlegt á sínum tíma að gefa út bráðabirgðalög. Ég man ekki betur en það megi breyta kosningal. á Íslandi og skipta tvímenningskjördæmi í einmenningskjördæmi. Nú vildi ég spyrja þennan hv. þm., hvort ríkisstj. gæti ekki tekið upp að skipta tvímenningskjördæmi í einmenningskjördæmi, og tryggði sér með því meiri hluta á Alþ. Hvernig myndi hv. þm. líka þetta næsta þing á eftir? Það þyrfti út af fyrir sig ekki nema eina eða tvær breytingar á l. til þess. Ég býst við, að hv. þm. myndu ekki álíta rétt í slíku tilfelli að gefa út bráðabirgðalög, þó að hv. þm. vildu á sama þingi greiða atkv. með einhverju öðru frv., sem fram kæmi og gengi í sömu átt. Ég vil telja, að þeir hv. þm., sem eru andvígir því, hvernig þessi brbl. voru sett á og telja þau óþörf, eigi að greiða atkv. á móti þeim, til þess að vernda þann rétt, sem Alþingi hefir sem löggjafi og það á ekki að láta taka úr sínum höndum og ekki láta ráðh. fara með, nema nauðsynlegt sé.
Því finnst mér, að þeir menn, sem eru á móti því, að þessi brbl. voru sett, eigi að greiða atkv. á móti þeim.