29.11.1939
Neðri deild: 71. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 310 í B-deild Alþingistíðinda. (818)
98. mál, verkamannabústaðir
*Héðinn Valdimarsson:
Það er nú nokkurn veginn sýnt, hvernig fara muni um frv. þetta í deildinni, en áður en það fer út úr deildinni vil ég ekki láta hjá líða að fara um það nokkrum orðum og rekja málið að nýju. Í umr. þeim, er orðið hafa um þetta frv., hefir ekki komið ein einasta ástæða, er sanni nauðsyn þess að gefa út brbl. til þess að koma fram þeim ákvæðum, er í frv. felast. Það var þegar ákveðið í lok síðasta þings að reisa þessa verkamannabústaði, og ef nauðsynlegt hefði verið að breyta lögunum, mátti gera það þá, en síðan hefir ekkert það skeð, er réttlæti setningu bráðabirgðalaga. Þessi frammistaða hæstv. félmrh. er algert einsdæmi, og því eftirtektarverðari er hún, þar sem ráðh. er ekki sjálfur löggjafi, en situr aðeins í ráðherrasæti í trausti þeirra samninga, er flokksbræður hans gerðu um stjórnarsamvinnu við þá aðra flokka, er að stjórninni standa.
Ég get ekki fallizt á þá skoðun, sem fram hefir komið hjá sumum hv. þm., sem sæti eiga í allshn. og um málið hafa fjallað, að þeim beri ekki skylda til þess að athuga annað en það, hvort breytingar þær, sem frv. felur í sér, séu æskilegar eða ekki. Ég lít svo á, að allshn. beri ekki síður að taka afstöðu til þess, hvort útgáfa bráðabirgðalaganna var nauðsynleg eða ekki. Henni ber að gæta réttar löggjafarvaldsins gagnvart framkvæmdarvaldinu, en það hefir hún ekki gert í þessu máli. Undirtektir hv. þm. sýna einnig, að hér er ekkert réttlætismál á ferðinni, sem meiri hluti þingsins vill framkvæma, heldur er þetta samningsmál við einn ráðherrann í stjórnarsamvinnunni, sem hann vill koma fram án þess að leita samkomulags við þingið. Þetta er eitt dæmi þess, hverskonar stjórnarfyrirkomulag það er, sem við eigum við að búa, hin svo kallaða þjóðstjórn. Það er samið um ranglætið af öllum flokkum, sem að stj. standa, en hver reynir jafnframt að velta ábyrgðinni af sér.
Ég hefi áður skýrt frá því, hver væri tilgangur þessara bráðabirgðalaga. að þeim væri stefnt gegn Byggingarfélagi alþýðu, eða þeim af meðlimum þess, sem hæstv. félmrh. telur vera í pólitískri andstöðu við sig. Þá hefi ég og áður minnzt á annað atriði bráðabirgðalaganna, þar sem talið er nauðsynlegt, að ríkisstj. skipi formann í stjórn byggingarfélaganna, ef talið verður, að þau njóti aðstoðar ríkisins. Framsfl., sem telur sig málsvara samvinnufélaganna, hefir ekkert við það að athuga, þótt gengið sé inn á þessa braut, að skerða sjálfsákvörðunarrétt félaganna, og það er eingöngu vegna þess, að hér er um samvinnufélag í kaupstað að ræða, þar sem flokkurinn hefir ekkert fylgi.
Þá er ekki hvað sízt eftirtektarverð sú fyrirlitning,sem sýnd er þeim mönnum, er hér eiga hlut að máli. Hér í bæ er byggingarfélag með á sjöunda hundrað meðlima, sem flestir eru fjölskylduföður, og á fimmta hundrað manns bíða þess rólegir, að röðin komi að þeim að fá íbúðir í verkamannabústöðunum. Um vilja þessa fólks er ekkert skeytt, né það, hve mikið það hefir á sig lagt til þess að koma félaginu á fót, svo að það með tímanum geti eignazt sæmilegar íbúðir, heldur er styrknum fleygt í þá menn, sem hæstv. félmrh. hefir útvalið, að miklu leyti fyrirfram, til þess að fá íbúðirnar; og þetta er eingöngu vegna þess, að hæstv. félmrh. hugnast ekki að þessu fólki. Það gefur líka þokkalegan svip af þm. yfirleitt, hvernig þeir snúast við þessu máli. Breyting sú, er allshn. gerir á lögunum — sem að vísu er ekki til annars en að klóra yfir það, að hún fallist á frv. óbreytt —, tekur út þá grein, er segir til um, í hvaða röð félögin eiga að hafa rétt til styrksins. Ég hefi áður bent á, að eins og lögin eru nú geta mörg félög fengið styrkinn, þó aðeins eitt komi til greina í einu, en sá er munurinn, að það félag, sem búið er að starfa lengst og komið hefir mestu í framkvæmd. á nú ekki að hafa meiri rétt til hans en nýtt félag, ef samið er um það bak við tjöldin. Þá henti ég einnig á það við 2. umr., að þeir menn, sem ganga í byggingarfélögin, hafa nú enga vissu fyrir því, að þeir verði réttindanna aðnjótandi í réttri röð.
Þau fjárhagslegu vandræði, er steðjað hafa að byggingum verkamannabústaðanna, þarf ekki að fara nánar út í en ég hefi áður gert, en allt efni hefir orðið 50–100% dýrara en verið hefði, ef óráð hæstv. félmrh. hefði ekki verið tekið upp.
Þá vil ég með nokkrum orðum víkja að því, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði um þetta mál. Mér finnst það ekki sitja vel á borgarstjóranum í Reykjavík að tala svo kuldalega um húsnæðisvandræði verkamanna sem hann gerði, og ef ætti að tala um það, á hverjum hvíldi mest ábyrgðin á því, hvernig þeim málum er komið, þá er það án efa á bæjarstjórn Reykjavíkur. Skipulagsmál bæjarins og byggingarmál ætti að vera eitt af hennar aðalmálum, en hingað til hefir bæjarstjórnin látið það vera undir einstaklingunum komið, hvernig framkvæmd þeirra mála er háttað. Að vísu skal málum þessum skotið til byggingarnefndar, en hingað til hafa afskipti hennar verið næsta lítil. Í nágrannalöndunum er það hvarvetna talið mikilsvert, hvernig byggingum er fyrir komið, eða skipulagsmál bæjanna, og hvernig unnt er að sjá bæjarbúum fyrir góðu húsnæði. Hér hefir skipulagsuppdráttur af bænum verið 10–20 ár á leiðinni og er ekki kominn ennþá, og víða veit enginn, hvernig á að byggja á lóðunum. Hvernig bæjarstjórnin býr að þeim fátækustu, má sjá af því, að hún hefir fengið þeim til íbúðar Bjarnaborg og Suður-Pólana, en það eru lökustu íbúðirnar í bænum. þessi skortur á vilja meiri hluta bæjarstj. til þess að leysa þessi mál á viðunandi hátt hefir orðið til þess, að byggingarfélög hafa risið upp, en á meðan þau hafa ekki meira fé fyrir hendi, geta þau ekki ráðizt í meiri framkvæmdir. Það hefði því mátt búast við því, að ]nn. þess flokks, er mesta ábyrgðina ber á því, hvernig byggingarmálum bæjarins er háttað, öfundaðist ekki yfir því, þótt verkamenn fengju sæmilegar íbúðir.