20.03.1939
Efri deild: 20. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í B-deild Alþingistíðinda. (87)

8. mál, námulög

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Eins og sjá má á nál., þá boðar hv. 11. landsk. brtt. þá, sem hann var

að enda við að tala fyrir. Það, sem brtt. ræðir um, var rætt í allshn., en meiri hl. hennar gat ekki orðið sammála tillögumanni um að fella þessi orð niður úr 1. gr. frv. Annars kom það til umr. í n., enda þótt hún kæmi ekki með tillögu í þá átt, að helzt bæri að skerpa svo ákvæði laganna, að íhlutun hins opinbera um þessi mál næði einnig til jarða í eign einstaklinga. Og það held ég að öllum hljóti að vera ljóst, að bráðabirgðalögin, sem sett voru síðastl. sumar, voru fyrst og fremst sett til þess að kveða skýrt á um það, hversu víðtækur sá réttur væri, sem gert er ráð fyrir í námulögunum, að einstaklingar hafi. Verði það því ofan á, að ríkisvaldið grípi fram í með afskipti af jörðum einstaklinga í þessu efni, hví skyldi þá ekki einnig mega hafa slíka íhlutun að því er snertir jarðir opinberra sjóða? Annars hefi ég rætt um þetta við hæstv. forsrh., og hefir hann tjáð mér, að á þessu þingi myndi koma fram frv., þar sem farið væri fram á frekari íhlutun hins opinbera um þessi mál.

Af því, sem ég nú hefi tekið fram, ætti öllum að vera það ljóst, að sú stefna er uppi, að ríkisvaldið láti sig mál þessi meira skipta hér eftir en hingað til.

Eins og nál. ber með sér, þá hefir meiri hl. allshn. tekið þá ákvörðun, að ákvæði frv. nái einnig til þeirra jarða, sem eru í eign opinberra sjóða, því að hún telur svo skammt á milli þeirra og hinna, sem eru í eign hins opinbera, að þar verði vart á milli gert

Ég hefi ekki nákvæma skýrslu um það, hversu margar þær jarðir eru, sem teljast eign opinberra sjóða, en eftir því, sem ég hefi komizt næst, þá munu 19 sjóðir hafa ráð yfir 36 jörðum. Um hitt er vitanlega ekkert hægt að segja, hvort í landi þessara jarða kunni að finnast dýrmætir málmar.

Hv. 11. landsk. vill láta fella niður úr frv. ákvæðin, sem snerta jarðir hinna opinberu sjóða, eins og þegar hefir verið tekið fram, og færir þau rök fyrir máli sínu, að með þessum ákvæðum frv. sé gengið um of á hugsun gefendanna, eða það, sem fyrir þeim hafi vakað með gjöfinni. En þetta er hreinasti misskilningur hjá hv. þm. Ég býst nfl. við, að fyrir gefendum jarðanna hafi það vakað fyrst og fremst, að þær gætu orðið sem mest verðmæti fyrir sjóðina, sem þær mynda, til þess að sjóðirnir yrðu sem öflugastir og þess umkomnir að inna af hendi það hlutverk, sem þeim var ætlað af gefendunum.

Líti maður og til fossalöggjafarinnar, þá verður ekki um það deilt, að réttur einstaklinganna yfir vatnsorkunni er mjög takmarkaður gagnvart hinu opinbera. Hið sama hlýtur því að gilda um verðmæti, sem finnast kunna í jörðu, eins og t. d. málma o. fl.