05.12.1939
Neðri deild: 75. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í B-deild Alþingistíðinda. (874)

101. mál, ríkisreikningurinn 1937

Forseti (JörB) :

Eins og hv. þingm. sagði, liggja fyrir till. til þál. frá meiri og minni hluta fjárhagsnefndar, en mér skilst, að hvorugur nefndarhlutinn hafi neitt við reikningana sjálfa að athuga, svo að í sjálfu sér skiptir það engu máli, hvort þingsályktunartillögurnar eru ræddar á undan þeim eða eftir, þar sem engin brtt. á þeim liggur fyrir, heldur eru till. bæði meiri og minni hlutans út af reikningunum í heild. Ég get þó verið með því að fresta umr. um þetta um sinn. enda sé ég, að hv. frsm. er ekki mættur, en sjálfsagt er, að hann sé við, þegar þetta mál er tekið til umræðu.