07.12.1939
Neðri deild: 77. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í B-deild Alþingistíðinda. (877)

101. mál, ríkisreikningurinn 1937

*Frsm. (Sveinbjörn Högnason) :

Herra forseti! Eins og nál. frá fjhn. ber með sér, hefir sú n. orðið ásátt um að leggja til, að frv. verði samþ. Fjhn. hefir farið allrækilega yfir þetta frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1937, borið hvern einstakan lið saman við ríkisreikninginn og farið allrækilega yfir aths. frá endurskoðendum og svör við þeim.

Eins og nál. ber með sér, urðu nm. ekki á eitt sáttir um aths. yfirskoðunarmanna við þennan ríkisreikning, þótt n. skilaði sameiginlegu áliti um frv. Meiri og minni hl. fjhn. skilaði hinsvegar sinni þáltill. hvor í tilefni af reikningnum sjálfum og aths., sem gerðar voru við hann. Hinsvegar sá fjhn. enga ástæðu til annars en að samþykkt ríkisreikningsins væri óháð þessum till., og enginn nm. óskaði eftir því, að samþykkt ríkisreikningsins væri sett í samband við það, hvernig færi um samþykkt þeirra till., er n. hefir borið fram sitt í hvoru lagi, þar sem álitið var, að umr. færu fram, þegar þær till. verða teknar á dagskrá, og verður þá rækilega minnzt á þau atriði. Vona ég því, að frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningnum geti gengið áfram gegnum hv. Nd.