08.12.1939
Neðri deild: 78. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í B-deild Alþingistíðinda. (884)

101. mál, ríkisreikningurinn 1937

*Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson):

Til þess að það sé ekki að þvælast fyrir í umr., vil ég svara hv. 6. þm. Reykv. Hann sagði, að ég hefði borið það upp á tvo af þm. Sjálfstfl., sem borið hafa fram till. til þál. út af samþykkt þessa landsreiknings, að till. þeirra bæri með sér, að þeir hafi ekki vitað, um hvað aths. endurskoðunarmanna landsreikningsins voru. Þetta var ekki nákvæmlega rétt með farið. Ég upplýsti það, að ef þeir hefðu verið búnir að athuga málið til hlítar, mundu þeir ekki hafa farið þeim orðum, sem þeir viðhafa, um útistandandi skuldir áfengisverzlunarinnar. Flest eru það skuldir lækna og lyfjabúða, og þá eingöngu fyrir lyf; þær eru orðnar margfalt minni nú en fyrir 10 árum, eða 1927. Á því byggði ég ummæli mín. Ég gizkaði á það þá, og ég veit það nú, að orð þeirra stöfuðu af vanþekkingu. Hv. þm. talar um, hvort ekki nægði, að áfengisverzlunin lánaði í mánaðarreikninga. En það er engum lánað áfengi, hvorki í mánaðarreikning né lengur. Það var tekið fyrir það, ég man ekki fyrir hvað löngu. Hv. þm. hefir bara séð, að til voru útistandandi skuldir, og álitið, að það væri fyrir vínanda. Ég vona, að mér fyrirgefist, þó að ég álíti þetta gert að lítt athuguðu, en ekki yfirlögðu ráði hjá þeim.

Hv. 6. þm. Reykv. vill hafa óskilið milli sín og endurskoðenda landsreikninganna. Það er ekki hægt. Í stað kurteislegra aths. og grg. endurskoðenda viðhafa flm. þáltill. órökstudd svigurmæli, sem verður að skilja svo sem frekasta óreiða hafi átt sér stað hjá ríkisstofnununum. Þeir segja: — lánsverzlunin innanlands er annað vandræðamálið. Er ríkisstjórninni í sjálfsvald sett að varast þau viti“, — eins og þau „viti“ séu alltaf að gerast. Síðan þessi ádeila var spunnin upp í blöðum, hefir verið spurt stöðugt í áfengisverzluninni, hvort það væri virkilega svo, að áfengi sé lánað til Péturs og Páls.

Hv. þm. (SK) segir, að það sé ekki rétt að rísa upp með ofstæki gegn endurskoðunarmönnum landsreikninganna. Ég vil segja það sem mína skoðun og hefi oft sagt það, að einmitt skynsamleg gagnrýni hér á Alþingi getur verið hin bezta stoð fyrir fjmrh., m. a. til að halda í skefjum þeim stofnunum, sem fá fé sitt úr ríkissjóði. Endurskoðendur verða hinsvegar að þola gagnrýni eins og aðrir menn fyrir sín verk. Ég vísa því algerlega á bug, að ég hafi gefið tilefni til þessara orða hv. þm.