08.12.1939
Neðri deild: 78. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í B-deild Alþingistíðinda. (887)

101. mál, ríkisreikningurinn 1937

*Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti! Ég vildi aðeins láta þess getið, að þrátt fyrir það, þó hæstv. forseti lýsti því yfir í ræðu sinni. að sér skildist, að aðalumr. um þáltill. minni og meiri hl. fjhn. færi nú fram, þá held ég fast við það, sem ég hefi áður sagt, að ég mun geyma aðrar aths. minar þangað til þær umr. fara fram. Mér skildist, að hv. 1. þm. Rang. gerði einnig ráð fyrir því sama, og mun ég þess vegna ganga út frá því, að hæstv. forseti geri einnig ráð fyrir því.