22.11.1939
Efri deild: 66. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í B-deild Alþingistíðinda. (907)

120. mál, stríðstryggingafélag skipshafna

*Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Eins og hv. þd. er kunnugt, var á sínum tíma gerður samningur milli útgerðarmanna verzlunar- og fiskiskipa annarsvegar og sjómanna hinsvegar um sérstaka stríðstryggingu vegna ófriðarins. Þar sem hér var um verulegar tryggingar að ræða, sem hljóta að hafa í för með sér veruleg gjaldeyrisútgjöld, ef þær eru framkvæmdar hjá erlendum tryggingarfélögum, tók ríkisstj. til athugunar, hvernig hægt væri að koma þeim svo fyrir, að verulegur hluti fjárins væri á höndum innlendra stofnana. Því var skipuð n., sem í voru Brynjólfur Stefánsson tryggingaforstjóri, Jón Blöndal hagfræðingur og Ásgeir Þorsteinsson forstjóri fyrir vátryggingarfélagi íslenzkra botnvörpueigenda. Ég fól n. að athuga, hvernig væri hægt að koma fyrir þessum tryggingum á verzlunar- og fiskiflotanum, er fer með fisk á erlendan markað, þannig að þær væru á innlendum höndum. Nd. ritaði stj. álitsgerð um málið, lagði til, að sett yrðu sérstök l. um þetta og lét fylgja frv. að þessum l., sem hér er lagt fram, sem að vísu var nokkuð breytt, áður en það var gefið út sem brbl. 27. okt. síðastl. N., sem undirbjó málið, komst að þeirri niðurstöðu, að með því að koma tryggingunum á innlendar hendur mætti spara mikinn gjaldeyri. Með iðgjaldi því fyrir dauðatryggingu, sem erlend félög höfðu fyrir ferðir til Norðurlanda og Bretlands, myndi dauðatrygging fyrir 225000 króna upphæð kosta 1000–2000 kr. fyrir eina ferð, en þar við bætist svo örorkutrygging. N. gerði ráð fyrir 60000–120000 kr. tryggingarupphæð alls fyrir eina ferð. Af þessu er ljóst, að um allmikinn gjaldeyri er að ræða, ef þessar upphæðir væru allar á höndum erlendra tryggingarstofnana. Því leggur n. til, að þetta tryggingarfélag verði stofnað. Þátttakendur yrðu ríkissjóður með nokkra upphæð og vátryggingarfélög, sem starfa hér á landi, svo sem Tryggingarstofnun ríkisins. Skipaeigendur myndu að sjálfsögðu einnig taka þátt í þessu og svo Brunabótafélag Íslands. En af því að tryggingarupphæðin gæti hæglega orðið svo há, ef slys bæri að höndum, að þessir aðilar gætu orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni, leggur n. til, að nokkuð af tryggingarupphæðinni yrði hjá erlendum félögum. Stj. tók því þetta atriði til athugunar og ræddi við hlutaðeigendur, og voru undirtektir þeirra hinar beztu.

Nú var það aðkallandi, að þessar tryggingar gætu sem fyrst komizt á fót, og gaf því stj. út bráðabirgðalög þau 27. okt., sem hér liggja fyrir til staðfestingar. Í frv. er lagt til, að stofnað sé þetta tryggingafélag íslenzkra skipshafna, þar sem gert er ráð fyrir, að þátttakendur séu skipaeigendur, ríkisstj., Tryggingarstofnun ríkisins og Brunabótafélag Íslands.

Strax og brbl. voru gefin út, var skipuð stj. í samræmi við 3. gr. frv. Þar er gert ráð fyrir, að ríkisstj. skuli tilnefna formann stj. félagsins, annar meðlimur stj. sé tilnefndur af eigendum skipa þeirra, sem eru í félaginu, en sá þriðji af vátryggingafélögum þeim, er taka þátt í tryggingunni. Ríkisstj. hefir skipað Brynjólf Stefánsson sem formann, vátryggingarfélögin skipuðu fyrir sig Jón Blöndal, en skipaeigendur Ásgeir Þorsteinsson.

Ég mun snúa mér til þessarar félagsstj. og biðja hana að láta n., er um þetta á að fjalla, í té upplýsingar og till. til breytinga, er hún kann að hafa. Fyrir brbl. hefi ég gert þá grein, að þar sé aðalástæðan gjaldeyrissparnaður, sem af þessu myndi leiða, og svo ætti það að vera okkur nokkurt metnaðarmál að geta haft tryggingarnar í eigin höndum, eftir því sem ástæður leyfa. Ég ætla, að þetta muni ekki verða stór áhætta fyrir ríkissjóð, þó að ekkert sé hægt að segja um það með vissu. Hinsvegar gæti farið svo, að af þessum tryggingum yrði ágóði, ef heppnin væri með. En ég tel, að ríkinu beri að leggja nokkuð í hættu til þess að þurfa ekki að láta af höndum þann mikla gjaldeyri, sem ella myndi fara í tryggingarnar.

Ég mæli svo með því, að frv. fái fljóta og góða afgreiðslu og fari til fjhn. að lokinni umr.