08.12.1939
Efri deild: 79. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í B-deild Alþingistíðinda. (910)

120. mál, stríðstryggingafélag skipshafna

Frsm. (Erlendur Þorsteinsson):

Fjhn. hefir haft þetta frv. til meðferðar á nokkrum fundum, en eins og nál. ber með sér, hefir ekki ennþá orðið tækifæri til að tala við stj. tryggingarfélagsins, og hefir n. ekki heldur ákveðið, hverjar brtt. hún kynni að bera fram við frv. En vegna þess að n. vill, að frv. nái fram að ganga, væntir hún, að d. geti fallizt á, að málinu verði nú vísað til 3. umr. og þá teknar meir til athugunar einstakar gr. og væntanlegar brtt.