27.12.1939
Neðri deild: 94. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 397 í B-deild Alþingistíðinda. (970)
97. mál, hitaveita Reykjavíkur
*Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Út af brtt. á þskj. 611, sem hv. þm. V.-Húnv. var að enda við að gera grein fyrir, vil ég taka það fram, að um hitaveitumálið sjálft voru gerðir samningar milli Reykjavíkurbæjar annarsvegar og milli Höjgaard & Schultz, sem er danskt firma, hinsvegar og að nokkru í sambandi við danskan banka, Handelsbanken í Kaupmannahöfn. Og þó að því sé sleppt, hvort þessi brtt. er eðlileg eða óeðlileg, sanngjörn eða ósanngjörn, þá gæti ég búizt við, að samþykkt þessarar till. torveldaði framkvæmd samninga um hitaveituna. Eftir minni kynningu af þessum aðilum, sem eru mjög nákvæmir og engu má skakka við, þá get ég gert ráð fyrir, að þessir dönsku aðilar hreyfðu mjög ákveðnum andmælum gegn þessari till., ef hún væri sett inn í l. Ég vara því við að samþ. hana, þar sem hún gæti orðið til þess, að upp úr slitnaði um endanlega samninga milli Reykjavíkurbæjar og þess danska firma, sem hér á hlut að máli.