27.12.1939
Neðri deild: 94. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 398 í B-deild Alþingistíðinda. (972)

97. mál, hitaveita Reykjavíkur

*Skúli Guðmundsson:

Þeir Reykvíkingar, sem til máls hafa tekið, hafa tekið þessa till. nokkuð á annan veg en ég hafði vonazt eftir. Hæstv. félmrh. ræddi að vísu ekki efni hennar. Hann sagði aðeins mjög óákveðnum orðum, að hún gæti gert einhver óþægindi og myndi ef til vill torvelda framgang málsins og sæta andmælum frá einhverjum útlendingum.

Mér er ekki kunnugt um það, hvernig samningarnir eru, en ég vil í lengstu lög vænta þess, að við séum ekki bundnir við erlenda menn um okkar löggjöf. Orð hæstv. ráðh. um það, að upp úr kynni að slitna um samningana, þykja mér undarleg, því ég hefi skilið það svo, að það sé búið að gera samningana, og svo hitt, að það er byrjað á framkvæmd hitaveitunnar.

Hv. 6. þm. Reykv. segir, að málið sé svo langt á veg komið, að ekki sé fært að gera á því neina röskun. Þetta er engin röskun. Hér er aðeins um það að ræða, að Reykjavíkurbær endurgjaldi mjög smávægilega þau miklu fríðindi, sem hann fær hjá ríkinu.

Hv. 6. þm. Reykv. sagði út af ummælum mínum um fólksstrauminn til kaupstaðanna, að það mætti ekki standa í vegi fyrir framförunum. Hver er að tala um að standa á móti framförum? Ég hefi ekki hreyft neinum andmælum gegn þessari ríkisábyrgð. Og út af því, sem hv. þm. sagði, að slíkt gjald væri ekki tekið af öðrum, þá vil ég benda hv. þm. á það, að þó Alþ. hafi látið þetta niður falla hingað til, þá er það ekki við neitt bundið í þessu efni í framtíðinni, og ef þessi háttur yrði upp tekinn, þá sé ég ekkert eftir, að byrjað yrði á stóru fyrirtæki, ekki sízt þegar því er yfir lýst, að hér sé um gott fyrirtæki að ræða, sem vel geti risið undir þessu. Ég vil ekki kannast við, að ég sé að reyna að leggja neinn stein í götu Reykjavíkurbæjar. Till. mín getur ekki skaðað neitt. Ég hefi bent á, að þetta fyrirtæki væri að allra dómi svo gott, að það gæti engin áhrif haft, þó að tekin yrði þessi lítilfjörlega þóknun, sem hér er farið fram á. Og hvað viðvíkur erlendum lánardrottnum, þá get ég ekki skilið, hvað þetta kemur þeim við. Ég álít, að þeir hafi svo góðar tryggingar, að þetta skipti þá engu máli. Og ég þykist vita, að alþm. hafi greitt atkv. með þessari ábyrgð í því trausti, að aldrei kæmi til, að ríkið þyrfti neitt að greiða af þessu láni. Ég álít af þessum ástæðum, að sú mótbára gegn þessari till., að hætta sé á, að verkið stöðvist, hún hafi ekki við neitt að styðjast. Hitt getur vel verið, að einhverjir af þeim mönnum, sem sérstaklega njóta þessarar framkvæmdar, vilji komast hjá að leggja nokkuð á sig til þess að aðrir landsmenn geti fengið að njóta hliðstæðra gæða.