22.02.1939
Sameinað þing: 3. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (992)

1. mál, fjárlög 1940

*Héðinn Valdimarsson:

Það mun nú ef til vill mörgum finnast, að það hafi verið lítil ástæða til þess fyrir okkur að senda bréf það. er hæstv. forseti las upp, þar sem öllum landslýð er fullkunnugt um stofnun flokks okkar. En við gerðum það sökum þess, að okkur hafði borizt til eyrna, að hæstv. forseti myndi ætla að kveða upp úrskurð um það, hvort flokkur okkar væri þingflokkur eða ekki. Eins og kunnug er, þá myndaðist flokkurinn á þann veg, að síðastl. haust sameinaðist Kommúnistaflokkur Íslands og þeir fulltrúar sameiningarmanna Alþýðuflokksins, er kosnir höfðu verið á þing Alþýðusambandsins. Tók flokkur þessi, Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn, þá við öllum réttindum Kommúnistaflokksins og sameiningarmanna Alþýðuflokksins. Í þessum flokki urðum við því fjórir þingmenn, sem undir bréfið ritum. Nú mun hvorki hæstv. forseti eða aðrir leyfa sér að bera brigður á, að við séum allir réttkjörnir þingmenn. Ég fæ því ekki séð, hver munur getur verið á þingflokki og flokki þeim, er við tilheyrum. Það hlýtur því að verða örðugt fyrir hæstv. forseta að úrskurða það, að við, sem erum rétt kjörnir þingmenn, megum ekki tala fyrir hvaða flokk, sem við viljum.

En fari nú svo, að hæstv. forseti kveði hér upp úrskurð á sama hátt og félagar hans hafa gert á öðrum vettvangi, þá krefjumst við þess, að sú skipun megi haldast, er var á síðasta þingi, að þeir þrír hv. þm., er undir bréfið rita með mér, fái að tala fyrir sérstakan flokk, eins og þeir gerðu þá, en ég utan flokka. Að sjálfsögðu munum við svo allir tala fyrir þann flokk, er við tilheyrum.