15.02.1940
Sameinað þing: 1. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (1)
Forsætisráðherra setur þingið
Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsals neðri deildar. Þessir þingmenn voru til þings komnir:
1. Árni Jónsson, 9. landsk. þm.
2. Bergur Jónsson, þm. Barð.
3. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.
4. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.
5. Bjarni Bjarnason, 2. þm. Árn.
6. Bjarni Snæbjörnsson, þm. Hafnf.
7. Brynjólfur Bjarnason, 1. landsk. þm.
8. Einar Árnason, 2. þm. Eyf.
9. Einar Olgeirsson, 5. þm. Reykv.
10. Eiríkur Einarsson, 8. landsk. þm.
11. Emil Jónsson, 6. landsk. þm.
12. Erlendur Þorsteinsson, 10. landsk. þm.
13. Eysteinn Jónsson, 1. þm. S.-M.
14. Finnur Jónsson, þm. Ísaf.
15. Garðar Þorsteinsson, 7. landsk. þm.
16. Gísli Guðmundsson, þm. N.-Þ.
17. Gísli Sveinsson, þm. v.-Sk.
18. Haraldur Guðmundsson, þm. Seyðf.
19. Helgi Jónasson, 2. þm. Rang.
20. Hermann Jónasson, þm. Str.
21. Héðinn Valdimarsson, 3. þm. Reykv.
22. Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-.
23. Ísleifur Högnason, 4. landsk. þm.
24. Jakob Möller, 2. þm. Reykv.
25. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.
26. Jón Pálmason, þm. A. Húnv.
27. Jónas Jónsson, þm. S.-Þ.
28. Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn.
29. Magnús Gíslason, 11. landsk. þm.
30. Magnús Jónsson, 1. þm. Reykv.
31. Ólafur Thors, þm. G.-K.
32. Páll Hermannsson, 2. þm. N.-M.
33. Páll Zóphóníasson, 1. þm. N.-M.
34. Pálmi Hannesson, 1. þm. Skagf.
35. Pétur Halldórsson, 1. þm. Reykv.
36. Pétur Ottesen, þm. Borgf.
37. Sigurður E. Hlíðar, þm. Ak.
38. Sigurður Kristjánsson, 6. þm. Reykv.
39. Sigurjón Á. Ólafsson, 2. landsk. þm.
40. Skúli Guðmundsson, þm. V.- Húnv.
41. Stefán Stefánsson, 3. landsk. þm.
42. Steingrímur Steinþórsson, 2. þm. Skagf.
43. Sveinbjörn Högnason, 1. þm. Rang.
44 Thor Thors, þm. Snæf.
45. Vilmundur Jónsson, þm. N.-Ísf.
46. Þorsteinn Briem, þm. Dal.
47. Þorsteinn Þorsteinsson, 5. landsk. þm.
Voru framantaldir þingmenn allir á fundi, nema þm. N.- Þ. og 2. þm. Reykv., sem boðað höfðu veikindaforföll. En ókomnir voru til þings:
1. Ásgeir Ásgeirsson, þm. v.-Ísf.
2. Jón Ívarsson, þm. A: Sk.
Konungsboðskapur
Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis, stóð upp forsætisráðherra, Hermann Jónasson, og las upp opið bréf, er stefnir Alþingi saman til reglulegs fundar fimmtudaginn 15. febrúar 1940, dags. 1. febr. s.á. (Sjá Stjtíð. 1940, A. bls. 9).
Því næst las forsætisráðherra upp konungsumboð sér til handa til þess að setja Alþingi, dags. s. d.
Samkvæmt því umboði lýsti forsætisráðherra yfir, að Alþingi væri sett, og mælti síðan:
„Minnumst ættjarðarinnar og konunga!“ og tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.
Forsrh. (Hermann Jónasson): Í dag er fimmtudagur, og er venjulegt að halda ekki fundi á laugardögum. Auk þess halda tveir stjórnarflokkanna allsherjar flokksfundi þessa dagana, og hefir ríkisstjórnin þess vegna talið hagkvæmast að fresta fundi til næstkomandi mánudags k1. 11/2, og er ætlazt til þess, að flokkarnir noti þann tíma til að undirbúa kosningar í nefndir. þannig að hægt sé að ljúka öllum venjulegum störfum með nægilegum hraða á þeim fundi.
Mánudaginn 19. febr., kl. 11/2 miðdegis, var fundinum fram haldið. voru þá til þings komnir þeir þingmenn, sem ókomnir voru við þingsetningu, en fjarstaddir voru þm. N.-P., sem var veikur, og 11. landsk. þm., sem boðað hafði forföll.
Forsætisráðherra kvaddi elzta þingmanninn, Ingvar Pálmason, 2. þm. S.M., til að stýra fundi þar til kosinn væri forseti sameinaðs þings.