29.03.1940
Neðri deild: 25. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í B-deild Alþingistíðinda. (1045)

41. mál, íþróttasjóður

Bjarni Bjarnason:

Það er leiðinlegt að þurfa að hlusta á það frá sparnaðarmanni eins og hv. þm. A.-Húnv., að það megi ekki afla fjár til bráðnauðsynlegra hluta með því að leggja aukaskatt á áfengi og tóbak, en heldur vill hann leggja fram allstórar upphæðir beint úr ríkissjóði. Helzta beina röksemdin gegn till. okkar flm. virðist vera sú, að það fé sé svo illa fengið, sem fæst við álagning á þessar nautnavörur, að ósæmandi sé fyrir íþróttamenn að nota það. En er nokkurn tíma um það fengizt, þegar fé er veitt úr ríkissjóði, þótt nokkur hluti þess sé ágóði af verzlun með vín og tóbak? Síður en svo. Mótbára þessi er því einskis virði. Þá er það „formið“, sem talið er hættulegt, svo að þess vegna séu beinar fjárgreiðslur úr ríkissjóði skárri. Þetta form er ekkert hættulegra hér en í því, sem veit að raforkuveitusjóði. — Þar var það annars „formið“, sem skipti svo miklu máli, að þess vegna þurfti að miða gjaldskylduna við fjölda kílóvatta, en ekki miða hana á nokkurn hátt við ábyrgðir, sem ríkissjóður hefir tekið á sig. Ég skal játa, að það er ekkert verra að miða við kílóvattafjöldann. — Nú er komið með nýtt formsatriði og krafizt frávísunar á brtt. okkar á þskj. 233. En það nær engri átt. Brtt. nær þeim mun skemmra en greinin, sem felld var, að tóbaksvörur eru undanskildar. Og mér heyrðist á ýmsum, að þeim væri ennþá annara um tóbakið en vínið, að það hækkaði ekki. Við flm. frv. töldum þá einstaklinga, sem þessara nautna vilja njóta, ekkert of góða til að greiða nokkurn skatt til aukinnar líkamsmenningar. Hér er um það eitt að ræða að leggja 20 aura á vínflösku, sem kostar 10 kr. Mér finnst það ekkert óskapleg hækkun fyrir þá, sem vilja fleygja 10 kr. fyrir flöskuna hvort sem er; þeir setja varla þessa 20 aura fyrir sig, ekki einu sinni þótt aurarnir eigi að fara til menningarauka.