29.03.1940
Neðri deild: 25. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í B-deild Alþingistíðinda. (1047)
41. mál, íþróttasjóður
Bjarni Bjarnason:
Það er miklu þægilegra fyrir íþróttafulltrúa, íþróttanefnd og félög íþróttamanna að geta gengið að því nokkuð vísu, hverjar tekjur sjóðsins verða um alllangt árabil heldur en eiga þær árlega undir högg að sækja á Alþingi. Án nokkurrar vissu um fé er ekki hægt að gera nauðsynlegar áætlanir um framkvæmdir.
Ekki verður komizt framhjá því, að þegar búið er að ákveða verð á víni og þessi aukaskattur, t. d. 20 au., leggst á til viðbótar, eru það vínkaupendur, en ekki ríkið, sem greiða íþróttaféð.