03.04.1940
Neðri deild: 29. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (1178)
48. mál, eftirlit með sveitarfélögum
*Einar Olgeirsson:
Mig langar til að gera smáaths. við þessa síðustu ræðu. Þessi hv. þm. þóttist vera að sanna það, að hv. 4. þm. Reykv. væri kommúnisti. Nú ætla ég með rökum hæstv. félmrh. að sanna, að hv. 1. þm. Rang. sé líka kommúnisti. Hér liggur fyrir álit frá hv. allshn., og í þessu áliti er tekið fram, að hæstv. félmrh. sé gefið allt of víðtækt vald yfir bæjar- og sveitarfélögum. Undir þetta álit skrifar m. a. hv. 1. þm. Rang., og fordæmir n. með mjög sterkum orðum, að hæstv. ráðh. sé gefið svo víðtækt vald yfir sveitarfélögunum. N. segir, að um frelsisskerðingu sveitarfélaganna sé að ræða, ef frv. þetta nái fram að ganga. Það er nákvæmlega hið sama, sem kemur fram í þessu nál., og það, sem ég sagði við 1. umr. þessa máls hér í hv. Nd. Þá svaraði hæstv. félmrh. með þessum orðum: „Er það eingöngu fávizku og barnaskap um að kenna, þegar fulltrúar kommúnista í báðum d. tala um, að hér sé um stórkostlega frelsisskerðingu á stjórn bæjar- og sveitarfélaga að ræða.“ Ég vona, að það sé af þessu ljóst, að það eru ekki eingöngu kommúnistar, sem álíta, að það sé frelsisskerðing, er felst í frv. hæstv. félmrh. Þegar þess vegna hv. 1. þm. Rang. sem málsvari allshn. segir, að þetta sé allt of víðtæk frelsisskerðing, þá hefir hann þar með látið í ljós sama álit á málinu og við kommúnistar, og ætti hann þess vegna eftir hans eigin röksemdafærslu gagnvart hv. 4. þm. Reykv. að vera kommúnisti. Ég tek þetta sem dæmi til þess að sýna fram á, að í raun og veru er enginn maður lengur öruggur fyrir því að verða ekki stimplaður kommúnisti.
Svo að ég tali um skilning á lýðræðinu í sambandi við þetta frv., þá skal ég leyfa mér að vitna til ummæla hæstv. félmrh. um þetta mál í Ed., þegar það var þar til umr. Ég skal nú, með leyfi hæstv. forseta, lesa ummæli hæstv. félmrh. Hann segir: „Ég hefi fáu að svara hv. 1. landsk. Það er mér ekkert hryggðarefni þó að hann sé sérstaklega andvígur þessu frv.; ég geri ráð fyrir, að það sé ekki óheilla fyrir þær sakir, heldur þvert á móti. Mér virðist ræða hans samskonar þeirri, er flokksbróðir hans hélt í Nd. á síðasta þingi. Þar gætir hins mesta misskilnings, sem hugsazt getur, og hann á eflaust rót sína að rekja til mismunandi skoðana á því, hvað kalla má lýðræði. Ég ætla hér ekki að gefa hv. 1. landsk. kennslustund um það atriði og hefi ekki ástæðu til að svara honum frekar. En ég fullyrði, að þetta frv. er byggt á fullkomnu lýðræði í öllum greinum.“ Ég geri ráð fyrir, að hæstv. félmrh. finnist 29. gr. þessa frv. vera ímynd hins fullkomna lýðræðis, sem hann ætlar að beita sér fyrir. Það eina, sem þessi hæstv. ráðh. hefir svo til að vitna í, eftir þá meðferð, sem frv. fær í nál., er það, að þetta sé heldur strangara í norskum og sænskum l. Það er kominn tími til þess, að hæstv. Alþ. fari að gera þessum hæstv. ráðh. ljóst, að hann er ekki ráðh. hér yfir sænskum eða norskum hreppum.